Tíu manna samkomutakmarkanir og skemmtistöðum lokað
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ríkisstjórnin hefur ákveðið að herða sóttvarnaaðgerðir frá og með miðnætti í kvöld. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir að sóttvarnalæknir hafi lagt fram þrjár leiðir, sem ríkisstjórnin hafi metið: Í fyrsta lagi óbreyttar aðgerðir, í öðru lagi að færa samkomutakmarkanir úr tuttugu manns í tíu, eða sem þriðja kost að loka samfélaginu í tíu daga. Ríkisstjórnin hafi valið leið tvö. Nú mega því einungis tíu manns koma saman í stað tuttugu. Þessar takmarkanir munu gilda til 2. febrúar nk. Viðburðir sem byggja á hraðprófum verða ekki lengur heimilaðir. Skemmtistöðum, börum og spilasölum verður gert að loka.\r\n\r\nFram kom í kynningu ráðherra utan við Ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu í morgun að ráðist verði í efnahagsaðgerðir til að bæta tekjufall sem af hertum aðgerðum hlýst.",
"innerBlocks": []
}