Fréttir

true

Fyrsta loðnan á Akranes

Venus NS-150 kom til hafnar á Akranesi í morgun með um tvö þúsund tonn af loðnu sem veiddist norður af Húnaflóa og Vestfjörðum. Þetta er jafnframt fyrsta loðnan sem berst til hafnar á Akranesi á vertíðinni. Af þessu tilefni færði Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri áhöfninni á Venusi tertu eins og hefð er fyrir við vertíðarbyrjun.…Lesa meira

true

Gular viðvaranir framundan

Gul veðurviðvörun tekur gildi við Breiðafjörð og Faxaflóa í kvöld og stendur fram á nótt en þá á að lægja. Önnur gul viðvörun tekur svo við snemma í fyrramálið og er í gildi fram að hádegi á fimmtudag. Við Faxaflóa tekur fyrri viðvörunin gildi klukkan 21:00 í kvöld og stendur yfir til klukkan 2:00 í…Lesa meira

true

Jarðskjálfti suðvestan við Húsafell

Síðustu sólarhringa hefur nokkur jarðskjálftavirkni verið suðvestur af Húsafelli. Klukkan 9:14 í morgun mældist jarðskjálfti 3,1 að stærð um 18 km suðvestur af Húsafelli, vestan við Ok, og fannst skjálftinn vel á Húsafelli. Í samtali við Rúv segir Salóme Jórunn Bernharðsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, að ekki sé hætta á eldgosi á þessu svæði. Hún…Lesa meira

true

Nova prýðir dagatal Blindrafélagsins

Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, gefur út dagatal fyrir árið 2022 með myndum af leiðsöguhundinum Novu. Tilgangurinn með útgáfu þess er að fjármagna kaup og þjálfun leiðsöguhunda fyrir blinda einstaklinga. Árið 2021 náði Blindrafélagið að styrkja kaup á þremur leiðsöguhundum. „Blindrafélagið telur mikilvægt að tryggja stöðugt framboð leiðsöguhunda fyrir blinda hér á landi,…Lesa meira

true

Hátt hlutfall íbúa í sóttkví eða einangrun

Eins og sakir standa eru um 2,8% íbúa á Vesturlandi ýmist í sóttkví eða einangrun vegna Covid-19. Þremur færri eru í einangrun í dag en voru í gær, eða 213. Að auki eru 223 í sóttkví. Nú eru flestir í einangrun á starfssvæði heilsugæslustöðvar HVE í Borgarnesi. Þar hefur veiran m.a. stungið sér niður á…Lesa meira

true

Skallagrímur með sigur á Hrunamönnum

Skallagrímur gerði sér ferð í gærkvöldi á Flúðir í Hrunamannahreppi þar sem þeir mættu heimamönnum í 1. deild karla í körfuknattleik. Aðeins tveimur stigum munaði á liðunum fyrir leik en liðin voru í sjöunda og áttunda sæti deildarinnar, Skallagrímur með tíu stig og Hrunamenn með átta. Hrunamenn skoruðu fyrstu þrjú stig leiksins en Skallagrímsmenn tóku…Lesa meira

true

Vetrarlægð í vændum

Í dag verður suðvestanátt á landinu, víða 13-18 m/s. Skúrir eða él, þó síst norðaustanlands, en rigning eða slydda í flestum landshlutum um tíma upp úr hádegi. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig. Síðan gengur í suðvestan 18-25 á morgun, hvassast verður norðvestan til á landinu. Úrkomulítið á Austurlandi, annars éljagangur. Hiti í kringum frostmark.…Lesa meira

true

Smitandi öndunarfærasýking í hundum

Matvælastofnun hefur nýlega fengið tilkynningar um að á höfuðborgarsvæðinu hafi verið óvanalega mikið um hóstandi hunda og lítur út fyrir að um sýkingu sé að ræða sem berst auðveldlega og hratt á milli hunda. Matvælastofnun hefur í samvinnu við Tilraunastöð Háskólans að Keldum sett af stað rannsóknarverkefni til að reyna að finna út úr því…Lesa meira

true

Ríkið kaupir Mið-Fossa fyrir starfsemi Landbúnaðarháskóla Íslands

Gengið hefur verið frá kaupum á Mið-Fossum í Andakíl og sú aðstaða þannig tryggð Landbúnaðarháskóla Íslands til framtíðar. Skólinn hefur leigt aðstöðuna á Mið-Fossum undanfarin 16 ár og nýtt til kennslu í hestafræðum og reiðmennsku. Þar er til staðar stórt hesthús fyrir um 70 hross, glæsileg reiðhöll og góð aðstaða til hestamennsku og kennslu í…Lesa meira

true

Spurningakeppnin Gettu betur að hefjast

Fyrsta umferð spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, hefst í kvöld. Ekki verður útvarpað frá keppnunum á Rás 2 Ríkisútvarpsins eins og verið hefur síðustu ár heldur verður beint streymi aðgengilegt á vef RÚV. 29 skólar taka þátt í keppninni í ár. Keppt verður næstu daga og lýkur fyrstu umferðinni á fimmtudagskvöld. Sigurliðin komast svo áfram í…Lesa meira