{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Fyrsta umferð spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, hefst í kvöld. Ekki verður útvarpað frá keppnunum á Rás 2 Ríkisútvarpsins eins og verið hefur síðustu ár heldur verður beint streymi aðgengilegt á vef RÚV. 29 skólar taka þátt í keppninni í ár. Keppt verður næstu daga og lýkur fyrstu umferðinni á fimmtudagskvöld. Sigurliðin komast svo áfram í aðra umferð sem verður í næstu viku, 17. og 19. janúar. Hægt verður að fylgjast með öllum viðureignum í streymi á ruv.is. Föstudaginn 4. febrúar hefjast svo sjónvarpsútsendingar frá Gettu betur og sjálf úrslitaviðureignin fer fram 18. mars.\r\n\r\nCovid-19 litar andrúmsloftið í Gettu betur þriðja árið í röð. Að þessu sinni þurfa allir keppendur að fara í hraðpróf og þá verður sérstaklega gætt að sóttvörnum í Efstaleiti. Engir áhorfendur eru leyfðir að þessu sinni. Verzlunarskóli Íslands er handhafi hljóðnemans eftir sigur á Kvennaskólanum í úrslitum í fyrra.\r\n\r\nTveir skólar af Vesturlandi taka þátt að þessu sinni. Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi mætir Fjölbrautaskóla Suðurnesja í kvöld klukkan 20:20. Þá mun Menntaskóli Borgarfjarðar í Borgarnesi mæta Menntaskólanum á Tröllaskaga og fer viðureign þeirra fram annað kvöld, miðvikudaginn 12. janúar klukkan 19.",
"innerBlocks": []
}
Spurningakeppnin Gettu betur að hefjast - Skessuhorn