Fréttir

true

Veðurfræðin getur verið flókin

Umræða hefur frá því að morgni nýársdags skapast um þá staðreynd að lægð sem ganga átti inn á suðvestanvert landið á gamlársdag reyndist hafa farið sunnar en veðurfræðingar spáðu. Því varð ekki slæmt veður í landshlutanum á gamlársdag, raunar frekar stillt vetrarveður, en þó lítilsháttar él með köflum. Gul og appelsínugul viðvörun reyndist því með…Lesa meira

true

Ferðaþjónusta er ekki í erfðaefni okkar Íslendinga

Í aðsendri grein sem Bjarnheiður Hallsdóttir formaður Samtaka ferðaþjónustannar ritar nú við áramót bendir hún á að uppgangur ferðaþjónustunnar er undirrót hagvaxtar síðasta áratugar og hefur bætt lífskjör á Íslandi svo um munaði. „Til að tryggja að svo verði áfram þarf hún og mikilvægi hennar einfaldlega meira pláss í hugum og í vitund Íslendinga,“ segir…Lesa meira

true

Fjórtán sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands sæmdi í dag 14 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Í þeim hópi eru m.a. tveir Borgnesingar, þau Anna Sigríður Þorvaldsdóttir tónskáld og Héðinn Unnsteinsson stefnumótunarsérfræðingur. Þessi hlutu viðurkenningu: Anna Hjaltested Pétursdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar, riddarakross fyrir framlag til mannúðar- og samfélagsmála. Anna Sigríður Þorvaldsdóttir tónskáld, riddarakross…Lesa meira

true

Flugeldasýning og brenna í Snæfellsbæ

Að venju var hlaðinn heljarstór bálköstur á Breiðinni milli Ólafsvíkur og Rifs á gamlársdag. Verkið var undir styrkri stjórn brennustjórans til margra áratuga; Hjálmars Kristjánssonar. Ágætis veður var á meðan á brennunni stóð. Fjölmenni mætti og naut skemmtunar og flugeldasýningu björgunarsveitarinnar Lífsbjargar sem var hin glæsilegasta.Lesa meira

true

Gleðilegt nýtt ár!

Skessuhorn sendir lesendum sínum nær og fjær óskir um gleðilegt nýtt ár með þökk fyrir samfylgdina á liðnu ári. Megi nýja árið færa ykkur öllum gleði og hamingju.Lesa meira

true

Flestir vegir færir – gular viðvaranir í gildi

Snjóþekja, hálka eða hálkublettir er nú á vegum á Vesturlandi og éljagangur er víða. Ófært er á Útnesvegi (574) á Snæfellsnesi og Fróðárheiði er sömuleiðis ófær. Aðrar helstu leiðir eru merktar færar á yfirlitskorti Vegagerðarinnar. Varað hefur verið við því að færð gæti spillst á vestanverðu landinu en lægð sem nú er vestan við landið…Lesa meira

true

Inflúensa, Covid-19, RSV og aðrar öndunarfærasýkingar

Töluverður fjöldi fólks greinist þessa dagana með Covid-19, inflúensu og aðrar öndunarfærasýkingar, segir í tilkynningu frá embætti Landlæknis. Samtals greindust 251 einstaklingur með Covid-19 á Íslandi í vikunni fyrir jól. Innlögnum á sjúkrahús hefur fjölgað vegna þess síðustu daga. Þá segir í tilkynningu að mikilvægt sé að fólk sinni persónubundnum smitvörnum því það dragi úr…Lesa meira

true

Áramótin og dýrin

Nú eru áramótin framundan og áframhaldandi veisluhöld hjá okkur mannfólkinu. Margir fagna áramótunum með skoteldum, með tilheyrandi hvellum og blossum. Fæstum dýrum er hinsvegar vel við slík læti og geta bæði hljóðin, höggbylgjan og blossinn valdið sumum þeirra ofsahræðslu sem getur leitt til slysa á þeim sjálfum og öðrum. Í gær mátti hefja sölu á…Lesa meira

true

Met slegið í flugeldasölu hjá Björgunarsveitunum Brák og Heiðari

Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi selur flugelda ásamt Björgunarsveitnni Heiðari í nýjum húsakinnum Brákar að Fitjum 2 við hringtorgið í Borgarnesi. Ásgeir Sæmundsson, meðlimur Brákar segir fyrsta dag sölunnar þetta árið hafa slegið sölumet hjá sveitunum tveimur. ,,Sala gærdagsins var á pari við sama dag undanfarin ár, 29. desember. Fyrsti dagurinn, 28. desember, hefur hins vegar…Lesa meira

true

Íþróttamaður Grundarfjarðar kjörinn á morgun

Þrjár tilnefningar bárust til kjörs á íþróttamanni Grundarfjarðar árið 2022 og verða úrslitin gerð kunn við hátíðlega athöfn í Samkomuhúsinu í Grundarfirði á gamlársdag, laugardaginn 31. desember klukkan 11. Við sama tækifæri verða sjálfboðaliðar heiðraðir fyrir óeigingjörn störf í þágu íþrótta- og tómstundalífs í Grundarfirði og sængurgjöf samfélagsins afhent foreldrum barna sem fæddust árið 2022.…Lesa meira