Fréttir

true

Krónan safnaði og gaf

Krónan afhenti hjálparsamtökum rúmlega 450 gjafakort fyrir jólin. Gjafakortin voru afrakstur jólasöfnunar sem fram fór í verslunum Krónunnar á aðventunni, þar sem viðskiptavinum bauðst að styrkja hjálparsamtök í sínu nærsamfélagi sem sjá um matarúthlutanir í aðdraganda jóla. Viðskiptavinir söfnuðu rúmlega 4,6 milljónum króna og lagði Krónan 5,4 milljón krónur á móti þeirri upphæð. Alls söfnuðust…Lesa meira

true

Nýjar reglur um íþrótta- og tómstundastyrk

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 14. desember 2022 breytingu á reglum um íþrótta- og tómstundastyrki sem tóku gildi 1. janúar 2023. Styrkurinn verður áfram kr. 70.000 á ári en jafnframt geta börn og unglingar á tekjulágum heimilum fengið kr. 30.000 á ári til viðbótar við tómstundastyrk.Styrkurinn sem miðast við almanaksárið er fyrir börn og…Lesa meira

true

Snæfellsbær með nýjan samning við Frystiklefann

Fram kemur á FB síðu Snæfellsbæjar að eitt af síðustu verkum ársins 2022 hafi verið að undirrita nýjan menningarsamning við Frystiklefann í Rifi. Samningurinn, sem gildir í tvö ár, felur í sér verkefni með leikskólum, eldri borgurum og einstaklingum með skerta starfsgetu, ásamt því að sjá eldri borgurum og unglingum í 8.-10. bekk fyrir ársmiðum…Lesa meira

true

Krapi og hálka á vegum

Krapi, snóþekja og hálka er nú víða á vegum á Vesturlandi og ástæða til að hvetja ökumenn til að fara með gát. Nokkur smáóhöpp hafa í dag orðið í umferðinni samkvæmt upplýsingum Skessuhorns og nú er vegurinn norðan við Akrafjall lokaður vegna óhapps við Kjalardal kl. 14:30. Engar frekari upplýsingar liggja fyrir um það óhapp,…Lesa meira

true

Fyrsti Vestlendingur ársins kom í heiminn á nýársdag

Fyrsta barn ársins á Vesturlandi er drengur sem kom í heiminn á fæðingadeild HVE á Akranesi klukkan 13:32 í gær, nýársdag. Drengurinn vó 3.810 grömm og er 52 sentímetrar að lengd. Foreldrar hans eru þau Sólveig Ólafsdóttir frá Reykjavík og Darri Atlason frá Ólafsvík en þau eru búin að búa í Borgarnesi síðastliðin fimm ár.…Lesa meira

true

Fréttablaðinu ekki lengur frídreift í hús

Torg útgáfufélag hefur hætt að dreifa Fréttablaðinu frítt í hús á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Það mun þó áfram verða prentað og gert aðgengilegt á fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Árborgarsvæðinu, Akranesi, Borgarnesi og Akureyri. Þá verður það sömuleiðis gert aðgengilegt á rafrænu formi eins og verið hefur. Útgefendur segjast í tilkynningu ekki telja að…Lesa meira

true

Magnea áfram hjá ÍA

Magnea Guðlaugsdóttir þjálfari kvennaliðs ÍA í knattspyrnu verður áfram þjálfari liðsins. Þetta kom fram á fundi með henni og leikmönnum liðsins í morgun en í byrjun desember hafði Magnea tilkynnt leikmönnum sínum að hún yrði ekki við stjórnvölinn á næsta tímabili. Magnea segir í stuttu spjalli við Skessuhorn að hún væri hætt við að hætta.…Lesa meira

true

Ísland í áttunda sæti yfir langlífi

Ný rannsókn á vegum NiceRx, amerískrar heilbrigðisvísindastofnunar, leiðir í ljós að Ísland situr nú í áttunda sæti á lista þjóða yfir langlífi. Meðallífslengd á Íslandi í dag er tæplega 84 ár. Meðalaldur kvenna er um 86 ár og meðalaldur karla 82 ár. Hong Kong situr í efsta sæti listans með meðalaldurinn rúm 85 ár, annað…Lesa meira

true

Ný rödd Toyota

Ólafur Darri Ólafsson hefur tekið við af Agli Ólafssyni sem rödd Toyota. Athygli vakti auglýsing Toyota á gamlárskvöld þar sem þeir félagar birtust saman á skjánum. Ekkert var sagt alla þá stund á meðan auglýsingin varði, en skilaboðin voru skýr þar sem Egill afhendir Ólafi Darra hljóðnemann. Egill hefur verið rödd Toyota í 30 ár…Lesa meira

true

Biskup hyggst hætta árið 2024

Séra Agnes M Sigurðardóttir biskup Íslands tilkynnti það í nýársprédikun sinni í Dómkirkjunni að hún muni láta af embætti eftir 18 mánuði en á næsta ári verður hún 70 ára. Morgunblaðið greindi frá. Agnes mun ljúka vísitasíu sinni um landið í Bolungarvík á sjómannadaginn á næsta ári, en þar var hún sóknarprestur um árabil en…Lesa meira