Fréttir

true

Langbylgjusendingar frá Gufuskálum og Eiðum heyra brátt sögunni til

Útlit er að langbylgjusendingum frá Gufuskálum á Snæfellsnesi og Eiðum á Austurlandi verði brátt hætt og þar með verði ekki lengur þörf á langbylgjumöstrum á þessum stöðum, en þau hafa í áratugi tryggt útvarpssendingar í gegnum FM dreifikerfið. Þetta kom fram í svari Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra við fyrirspurn Austurfréttar, en RÚV hefur rekið mastrið á…Lesa meira

true

Eldur út frá kamínu í sumarhúsi

Heildarútkall var á Slökkvilið Borgarbyggðar um klukkan tíu í morgun þegar kviknað hafði í út frá kamínu í sumarhúsi í Hvammslandi niður við Skorradalsvatn. Eigandi hússins var einn í húsinu og tókst honum, að sögn Heiðars Arnar Jónssonar varaslökkviliðsstjóra, að halda eldinum í skefjum og brást hárrétt við með því að loka gluggum og hurðum…Lesa meira

true

Frumvarp um hækkun starfslokaaldurs heilbrigðisstarfsfólks

Heilbrigðisráðuneytið hefur birt til umsagnar drög að frumvarpi til breytinga á lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Með frumvarpinu er lögð til undanþága frá almennri reglu um 70 ára hámarksaldur ríkisstarfsmanna þannig að heilbrigðisstarfsfólki sem vinnur við klínísk störf verði kleift að starfa til 75 ára aldurs á grundvelli ráðningarsamnings. Horft er til þess að með sveigjanlegum starfslokum…Lesa meira

true

Nýr kaldur pottur tekinn í notkun á Jaðarsbökkum – Myndband

Seinni partinn í gær var vígsla á nýjum köldum potti í Jaðarsbakkalaug á Akranesi. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri og Hrönn Ríkharðsdóttir formaður ÍA ávörpuðu viðstadda og síðan klipptu þau á borðann ásamt þeim Líf Lárusdóttur, Jónínu Margréti Sigmundsdóttur og Ragnari Baldvini Sæmundssyni úr bæjarstjórn Akraneskaupstaðar. Nýi potturinn kemur í staðinn fyrir fiskikar sem hefur verið…Lesa meira

true

Jólamarkaður Lions stóð fyrir sínu

Í gær, miðvikudaginn 7. desember, var mikið um að vera í Grundarfirði. Verslanir voru opnar fram á kvöld og margt fólk sem rölti á milli búða í blíðviðrinu. Hinn árlegi jólamarkaður Lions var einnig nýopnaður en þar var hægt að fá ýmislegt nytsamlegt og girnilegt til jólanna.  Lesa meira

true

Á þriðja hundrað mættu á jólatónleika í Dalabúð

Fjölskyldan á Skerðingsstöðum í Hvammssveit hélt jólatónleika í Dalabúð síðastliðið laugardagskvöld ásamt góðum vinum, mæðgunum Unni Sigurðardóttur og Ólöfu Bogadóttur frá Stóra-Kálfalæk á Mýrum, bræðrunum Steinþóri Loga og Kristjáni Inga Arnarssonum frá Stórholti í Saurbæ og Ingvari Kristjáni og Guðmundi Sveini Bæringssonum, frá Þorbergsstöðum í Laxárdal. „Þetta er í raun gamall draumur sem varð loks…Lesa meira

true

Umferðarmet á Hringvegi í nóvember

Umferðin á Hringvegi (1) í nóvember í ár er ríflega 11% meiri en í sama mánuði í fyrra. Þetta kemur fram í frétt á vef Vegagerðarinnar. Þar segir að líklegt þyki að einkar gott veðurfar í nóvember þetta árið hafi leitt til aukinnar umferðar. Umferð hefur aukist á öllum vikudögum miðað við nóvember í fyrra.…Lesa meira

true

Lemon míní opnar á þremur Olís þjónustustöðvum

Það hefur fjölgað hratt í hópi þeirra þjónustustöðva Olís sem bjóða upp á Lemon sem hluta af sínu vöruvali en Lemon rekur nú þegar hefðbundna staði í Norðlingaholti og í Gullinbrú í Reykjavík. Á undanförnum vikum hafa þjónustustöðvar Olís í Borgarnesi, á Akranesi og nú síðast á Selfossi bæst í hópinn. Þar er boðið upp…Lesa meira

true

Fjórar sorptunnur verða við hvert heimili á Akranesi

Samkvæmt þeim lögum sem taka gildi um áramót er varða flokkun sorps við heimili á Íslandi þarf að flokka sorp í fjóra flokka og skulu ílát vera fyrir hvern flokk við hvert heimili. Bæjarstjórn Akraness hefur sent frá sér tilkynningu um ákvörðun sína í þeim efnum. Þar segir að það fyrirkomulag sem hafi fengið mestan…Lesa meira