Fréttir

true

Piparkökubakstur foreldrafélagsins

Foreldrafélag Grunnskóla Grundarfjarðar stóð fyrir piparkökubakstri í skólanum síðasta mánudagskvöld. Þá mættu foreldrar og börn til að baka og skreyta gómsætar piparkökur og láta piparkökuilminn fylla sig jólaanda. Einbeitingin skein úr andlitum barnanna er þau skreyttu hverja piparkökuna á fætur annarri þó að ein og ein hafi ratað á milli tanna einhverra. Sjöundi bekkur sá…Lesa meira

true

Umferðaróhapp á Akrafjallsvegi

Árekstur varð á Akrafjallsvegi neðan við bæinn Vestra-Reyni um klukkan 15:45 í dag. Fjölmennt lið björgunarfólks er á vettvangi og meðal annars talið að beita þurfi klippum slökkviliðsins á bíl. Engar frekari upplýsingar liggja fyrir að svo stöddu. Vegurinn er nú lokaður á meðan á aðgerðum stendur og umferð er beint um Innnesveg.Lesa meira

true

Hver verður Vestlendingur ársins – Tilnefningar óskast!

Skessuhorn stendur nú í 25. skipti fyrir vali á Vestlendingi ársins, þeim íbúa landshlutans sem hefur á einhvern hátt skarað fram úr á árinu og verðskuldar sæmdarheitið Vestlendingur ársins 2022. Skilyrði er að viðkomandi hafi búsetu á Vesturlandi. Íbúar landshlutans geta sent tilnefningar á ritstjórn Skessuhorns um Vestlending ársins á netfangið: skessuhorn@skessuhorn.is eigi síðar en…Lesa meira

true

Boða til friðsællar mótmælagöngu

„Við starfsmenn Fjöliðjunnar á Akranesi ætlum aftur í friðsæla mótmælagöngu,“ segir í tilkynningu. „Í þetta skiptið ætlum við að mótmæla ósamræmi milli vilja starfsfólks Fjöliðjunnar og bæjarstjórnarinnar. Mótmælin verða miðvikudaginn 14. desember kl. 13. Við leggjum af stað frá Smiðjuvöllum 9 og göngum að Dalbraut 4 þar sem bæjarskrifstofurnar eru. Ósamræmið felst í að bæjarstjórn…Lesa meira

true

Snæfell fór létt með Ármann

Ármann og Snæfell áttust við í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og fór viðureignin fram í Kennaraháskólanum í Reykjavík. Leikurinn fór rólega af stað og eftir rúmar fjórar mínútur var staðan 5:9 fyrir Snæfelli. Þá skelltu Snæfellskonur í lás fram að lokum fyrsta leikhluta, skoruðu níu stig gegn engu frá Ármanni og staðan…Lesa meira

true

Þjófstarta innleiðingu hringrásarhagkerfis

Mánudaginn 5. desember var haldinn íbúafundur á Amtsbókasafninu í Stykkishólmi. Þrjú mál voru á dagskrá fundarins; nafn sameinaðs sveitarfélags Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar, markmið fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins og helstu lykiltölur og loks sorpmál og fyrirhugaðar breytingar í flokkun og endurvinnslu. Á fundi bæjarstjórnar í dag má búast við tíðindum um nafn á sameinuðu sveitarfélagi. Umfangsmiklar lagabreytingar voru…Lesa meira

true

Vígja í dag nýjan vegstubb í Mosfellsbæ

Um nónbil í dag verður formleg vígsla á 2. áfanga Vesturlandsvegar frá Skarhólabraut að Reykjavegi í Mosfellsbæ. Vesturlandsvegur er þar með allur orðinn fjórar akreinar með aðskildum akstursstefnum í gegnum bæjarfélagið. Verkið er hluti af Samgöngusáttmálanum.Lesa meira

true

Opinber störf á landsbyggðinni eiga það til að leka til baka

Haraldur Benediktsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður fjárlaganefndar Alþingis vakti máls á því, í umræðunni um fjáraukalög í vikunni, að mikil tilhneyging virðist vera til þess að forstöðumenn stofnana verji ekki störf á landsbyggðinni. Vísaði hann þar til niðurlagningar opinberra starfa frá Hafrannsóknastofnun í Ólafsvík. „Á stundum eru störf flutt með pompi og prakt „út á…Lesa meira