Fréttir

true

Hópsýking í hrossum á Suðurlandi

Upp er kominn óþekktur sjúkdómur í 30 hrossa hópi á Suðurlandi. Alls hafa 13 hross veikst og þar af sex drepist. Um er að ræða alvarlegan sjúkdóm sem einkennist af háum hita en auk þess hefur hluti hrossanna fengið mikinn bjúg á framfætur, brjóst og haus. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun sem rannsakar…Lesa meira

true

Hagvöxtur hæstur á Íslandi af samanburðarríkjum

Hagvöxtur á Íslandi var 7,3% á þriðja ársfjórðungi samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar sem birtar voru miðvikudaginn 30. nóvember. Það er talsvert meiri hagvöxtur en í samanburðarríkjum Íslands á sama tíma. Næst á eftir Íslandi er Portúgal með 4,9% hagvöxt. Á vef Stjórnarráðsins segir að þennan mikla vöxt megi rekja til aukins útflutnings og kröftugrar einkaneyslu.Lesa meira

true

Dagur reykskynjarans er í dag

Árlegt forvarnarátak Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) og HMS hófst í dag og mun átakið vara út desember. Með forvarnarátakinu er verið að hvetja fólk til að huga að mikilvægasta öryggistæki heimilisins, reykskynjaranum. Andlit átaksins í ár er Sandra Sigurðardóttir, landsliðsmarkvörður í fótbolta, og er afar kærkomið að fá svona flotta og öfluga fyrirmynd með…Lesa meira

true

Búkolla flytur á nýjan stað á nýju ári

Nytjamarkaðurinn Búkolla á Akranesi hefur tilkynnt á FB síðu sinni að hún muni opna í mars árið 2023 á neðri hæð í húsnæði Trésmiðjunnar Akurs á Smiðjuvöllum 9. Þar er nú til húsa hluti af starfsemi Fjöliðjunnar og dósamóttaka. Búkolla var áður með starfsemi í gamla íþróttahúsinu við Vesturgötu 62 en henni var hætt í…Lesa meira

true

Snæfell aftur á sigurbraut eftir stórsigur á Tindastóli

Snæfell og Tindastóll mættust í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í Stykkishólmi. Gengi liðanna í deildinni til þessa var afar ólíkt, Snæfell í öðru sæti með 16 stig og Tindastóll í því næst neðsta með aðeins fjögur stig. Tindastóll skoraði fyrstu tvö stig leiksins en Snæfell svaraði með 13 stigum…Lesa meira

true

Íþróttamaður ársins verðlaunaður og heiðursfélaganafnbót veitt á aðalfundi Borgfirðings

Aðalfundur hestamannafélagsins Borgfirðings fór fram sl. þriðjudag en þar var íþróttamaður félagsins þetta árið verðlaunaður ásamt því að veittar voru heiðursfélagaviðurkenningar. Þau Marteinn Valdimarsson, Halldór Sigurðsson, Guðrún Fjeldsted og Kristján Gíslason hlutu heiðursfélaganafnbót þetta árið og voru sérstaklega heiðruð með viðurkenningu og gjöf. Kristín Eir Hauksdóttir Holaker er íþróttamaður Borgfirðings 2022 en hún átti sterkt…Lesa meira

true

Skógræktarfélag Akraness 80 ára

Miðvikudaginn 18. nóvember 1942 var Skógræktarfélag Akraness stofnað og fagnar því 80 ára starfsafmæli á þessu ári. Stofnfélagar voru meðal annarra Arnljótur Guðmundsson bæjarstjóri, Svafa Þorleifsdóttir skólastjóri og Hálfdán Sveinsson kennari en á fundinn mættu um 30 manns. Í dag eru félagar rúmlega 100 talsins. Hægt er að skoða nánar sögu félagsins á FB síðu…Lesa meira

true

Verð á almennum bréfasendingum hækkar á nýju ári

Ný verðskrá Póstsins tekur gildi á nýju ári. Þar er þyngdarflokkum fækkað úr sex í þrjá. Verð á almennum bréfum hækka en verð á þyngri bréfum lækka. Verð á almennum bréfasendingum 0-50 gr. hækkar um 26%, fer úr 230 kr.- stk í 290 kr.- stk. Verð á sendingum bréfa 51-250 gr verður 330.- kr. stk.…Lesa meira

true

Gleðilega aðventu – hver syngur fyrstur?

Þriðja árið í röð hefur göngu sína jóladagatalið Skaginn syngur inn jólin en það verkefni byrjaði fyrir jólin 2020 þegar Covid-19 geisaði um heim allan. Með árinu í ár eru 72 flytjendur sem hafa komið þar fram. Hver syngur fyrstur í ár? Dagatalið má finna hér.Lesa meira