Fréttir

true

Bæjarstjórn unga fólksins kom saman

Síðastliðinn þriðjudag fór Bæjarstjórnarfundur unga fólksins fram á Akranesi. Þetta var í 21. skipti sem fundur af þessu tagi er haldinn. Fyrirkomulagið er þannig að settur er upp fundur í bæjarþingsalnum þar sem almennir bæjarfulltrúar og embættismenn koma sér fyrir líkt og á venjubundum fundum í bæjarstjórn, en auk þeirra fulltrúar íþrótta,- tómstunda- og skólafélaga…Lesa meira

true

Vilja varðveita leikfimishúsið við Vesturgötu

„Í þeirri vegferð sem bæjaryfirvöld hafa verið á, er varðar niðurrif á húsum, hafa bæjarbúar sjálfir lítið komið að málum. Í flestum tilfellum er þó verið að sýsla með sögu og ásýnd bæjarins. Þessi mál eru ekki rædd í aðdraganda kosninga. Þau virðast ekki vera pólitísk deilumál, né virðist vera nein áþreifanleg stefna í málaflokknum.…Lesa meira

true

Sækja um leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar í máli sveitarstjóra

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær var lagður fram dómur Landsréttar í máli Gunnlaugs A Júlíussonar fyrrverandi sveitarstjóra gegn Borgarbyggð. „Nú hefur verið staðfest á tveimur dómsstigum að rétt var staðið að uppsögn fyrrverandi sveitarstjóra. Landsréttur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að þriggja mánaða uppsagnarfrestur teldist ekki til umsamins sex mánaða biðlaunatíma, heldur teldist…Lesa meira

true

Fimm gáma leikskóli eftir áramót

Á fundi fræðslunefndar Borgarbyggðar nýverið var rætt um brýna þörf fyrir fleiri leikskólapláss í Borgarnesi. Fræðslunefnd taldi æskilegt að ráðist verði í uppsetningu sem fyrst á færanlegum kennslustofum við leikskóla á staðnum. Þá kallaði nefndin eftir afstöðu bygggðarráðs, sem tók málið til afgreiðslu í gær: „Byggðarráð telur mikilvægt að bregðast við skorti á leikskólaplássi og…Lesa meira

true

Hugmynd um samfélagsvegi kynnt íbúum Dalabyggðar 21. nóvember

Mánudaginn 21. nóvember n.k. kl.20:00 verður opinn fundur í Árbliki varðandi nýja hugsun í vegagerð, svo kallaða samfélagsvegi. Fundarstjóri er Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri Dalabyggðar Frummælendur eru Haraldur Benediktsson, alþingismaður Gísli Gíslason, fv. stjórnarformaður Spalar Ómar Tryggvason, Summu – fjárfestingasjóðs Það er Haraldur Benediktsson sem hefur í nokkurn tíma unnið að þessari nýstárlegu hugmynd í…Lesa meira

true

Vesturlandsslagur í körfunni í kvöld

Í kvöld eigast við ÍA og Skallagrímur í 1. deild karla í körfuknattleik og fer Vesturlandsslagurinn fram á heimavelli Skagamanna í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Liðin eru jöfn í 7. til 8. sæti í deildinni eftir átta leiki en bæði lið hafa unnið þrjá leiki og tapað fimm. Það er því mikið undir í…Lesa meira

true

Fimmtán ræktunarbú tilnefnd til verðlauna

Fagráð í hrossarækt hefur valið þau hrossaræktarbú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands fyrir ræktunarbú ársins. Að þessu sinni stóð valið á milli 36 búa sem náð höfðu athyglisverðum árangri á árinu. Tilnefnd eru 12 efstu bú ársins að loknum útreikningi, í ár voru nokkur bú jöfn í tólfta sæti og eru búin…Lesa meira

true

Starfsemi Smiðjuloftsins hætt á Smiðjuvöllum

Smiðjuloftið á Akranesi hefur verið starfandi í á fimmta ár eða frá því hjónin Þórður Sævarsson og Valgerður Jónsdóttir opnuðu aðstöðu að Smiðjuvöllum 17 árið 2018. Í færslu á FB síðu Smiðjuloftsins frá því í gærkvöldi kemur fram að starfsemin að Smiðjuvöllum mun hætta fljótlega eftir áramót. „Smiðjuloftið var opnað með margþætta starfsemi í huga…Lesa meira

true

Hrútaskráin komin út

Hrútaskrá sauðfjársæðingastöðvanna fyrir 2022-23 er nú komin á vefinn og er sömuleiðis væntanleg á prenti í næstu viku. Jafnan er víða til sveita beðið með eftirvæntingu eftir að Hrútaskráin komi út. Þá setjast menn yfir þetta merka rit, spá og spekúlera og velja í framhaldinu hvaða sæði verður pantað í uppáhalds ærnar á bænum. Á…Lesa meira

true

Framtakssjóður fjárfestir í Eðalfangi – móðurfyrirtæki Eðalfisks og Norðanfisks

Framtakssjóðurinn Horn IV hefur fjárfest í fyrirtækinu Eðalfangi og verður með kaupunum stærsti einstaki hluthafi í félaginu. Fyrirtækið Eðalfang er í grunninn tvö vestlensk matvælafyrirtæki með áherslu á sjávarútveg; þ.e. Eðalfiskur ehf. í Borgarnesi og Norðanfiskur ehf. á Akranesi. Nú hefur verið gefið út nýtt hlutafé en jafnframt leggja núverandi hluthafar félaginu til fjármagn en…Lesa meira