
Ómar Pétursson í Árdal í keppni í ístölti sl. vetur. Ljósm. Guðlaugur Óskarsson.
Fimmtán ræktunarbú tilnefnd til verðlauna
Fagráð í hrossarækt hefur valið þau hrossaræktarbú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands fyrir ræktunarbú ársins. Að þessu sinni stóð valið á milli 36 búa sem náð höfðu athyglisverðum árangri á árinu. Tilnefnd eru 12 efstu bú ársins að loknum útreikningi, í ár voru nokkur bú jöfn í tólfta sæti og eru búin því 15 alls. Tilnefnd bú munu hljóta viðurkenningu á ráðstefnunni Hrossarækt 2022 sem haldin verður í Sprettshöllinni næstkomandi sunnudag og þar verður ræktunarbú ársins sömuleiðis verðlaunað. Hér á Vesturlandi eru tvö bú tilefnd að þessu sinni; Árdalur í Andakíl og Skipaskagi. Auk þess er Vestlendinga víða að finna á listanum, sem reka bú sín í öðrum landshlutum.