Sóley Brynjarsdóttir flytur hér erindi sitt á fundinum. Ljósm. mm

Bæjarstjórn unga fólksins kom saman

Síðastliðinn þriðjudag fór Bæjarstjórnarfundur unga fólksins fram á Akranesi. Þetta var í 21. skipti sem fundur af þessu tagi er haldinn. Fyrirkomulagið er þannig að settur er upp fundur í bæjarþingsalnum þar sem almennir bæjarfulltrúar og embættismenn koma sér fyrir líkt og á venjubundum fundum í bæjarstjórn, en auk þeirra fulltrúar íþrótta,- tómstunda- og skólafélaga í bænum sem sæti eiga í Ungmennaráði Akraness. Fundurinn var öllum opinn og einnig var hægt að fylgjast með beinni útsendingu á síðu Akraneskaupstaðar. Ungmennin héldu framsöguerindi og síðan svöruðu bæjarfulltrúar spurningum þeirra.

Bæjarstjórn unga fólksins kom saman - Skessuhorn