Fréttir

true

„Að spila fyrir fólk er lífsnauðsynlegt fyrir mig“

Tónlistarmaðurinn Mugison hefur verið á tónleikaferð um landið undanfarið og var með alls níu tónleika í septembermánuði fyrir austan og norðan. Blaðamaður Skessuhorns heyrði nýverið hljóðið í Mugison, en hann hélt tónleika í Borgarnesi og á Akranesi í vikunni sem leið og var uppselt á þá báða, sem og allflesta tónleika sem hann hefur haldið…Lesa meira

true

Bleikur október á Akranesi hefst í dag

Bleika slaufan er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélags Íslands tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Bleiki dagurinn er föstudaginn 14. október en þá eru landsmenn hvattir til að sýna lit og bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa upp skammdegið í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning og samstöðu. Bleikur október Krabbameinsfélags…Lesa meira

true

Hafró lokar og starfsmanni boðið að segja sjálfur upp

Starfsmanni Hafrannsóknastofnunar í Ólafsvík (Hafró) hefur borist bréf um að starfsstöðinni þar verði lokað frá og með 1. janúar 2023, vegna uppsagnar á samningi um reksturinn. Fram kemur ennfremur að undirbúningur lokunarinnar sé þegar hafinn. Í bréfinu er tekið fram að af þessum sökum sé starfsmanninum boðið starf á öðrum starfsstöðvum Hafró. Næsta útibú stofnunarinnar…Lesa meira

true

Nýr steypubíll og ný gangstétt

Almenna umhverfisþjónustan ehf. festi á dögunum kaup á glæsilegum Iveco steypubíl sem bætist í flota fyrirtækisins. Fyrsta verkefnið hjá þessum forláta bíl var að útvega steypu í nýja gangstétt við Eyrarveg í Grundarfirði. Það var fyrirtækið Múr og steypa ehf sem sá um verkið og það voru fagmannleg handtök er fréttaritari Skessuhorns átti leið hjá…Lesa meira

true

Íslenskir keiluspilarar stóðu sig vel á móti á Möltu

Keilusamband Íslands sendi fjóra keppendur á keilumótið Malta Invitational Games sem fram fór á Möltu í síðustu viku og lauk á sunnudag. Arnar Davíð Jónsson, Elva Rós Hannesdóttir og Katrín Fjóla Bragadóttir komu frá KFR og Jóhann Ársæll Atlason frá ÍA. Á mótinu voru einungis þjóðir sem keppa á smáþjóðaleikunum og því mátti búast við…Lesa meira

true

Vinna í Hvalfjarðargöngum í nótt

Vegagerðin greinir frá því á Twitter-síðu sinni að vinna fari fram í Hvalfjarðargöngum í kvöld og í nótt, aðfaranótt 12. október. Göngin verða ekki lokuð á meðan heldur verður fylgdarakstur í gegnum göngin. Þá segir að flughált verði í göngunum meðan á vinnu stendur og vegfarendur því beðnir um að aka með gát.  Lesa meira

true

Skagamenn styðja Stelpurnar okkar

Fjöldi Skagamanna lagði land undir fót í morgun og flaug til Portó til þess að styðja Stelpurnar okkar. Íslenska kvennalandsliðið mætir í dag Portúgal í úrslitaleik um laust sæti á HM 2023 sem haldið verður í Ástralíu og Nýja-Sjálandi næsta sumar. Leikurinn hefst klukkan 17:00 að íslenskum tíma á Estadio Capital do Móvel í Portó.…Lesa meira

true

Fossinn áttavilltur

Appelsínugular og rauðar viðvaranir voru í gildi síðasta sunnudag víðs vegar um landið. Á Vesturlandi voru viðvaranir gular í þetta skipti enda spáin ekki eins slæm hérna. Þó nokkur skip leituðu þó til hafnar í Grundarfirði og var þétt setið á höfninni á sunnudaginn. Veðrið var þó til friðs í Grundarfirði en stíf norðanátt var…Lesa meira

true

Opinn fjarfundur – Vörðum leiðina saman

Innviðaráðuneytið , í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga, býður íbúum í öllum landshlutum til opins samráðs á fjarfundum í október undir yfirskriftinni Vörðum leiðina saman. Opinn fjarfundur fyrir íbúa á Vesturlandi verður haldinn 26. október milli kl 15-17. Fundurinn er haldinn í gegnum fjarfundarbúnaðinn Teams en skráning fer fram hér en henni lýkur 25. október. Þátttakendur fá boð í tölvupósti til…Lesa meira

true

Snæfell með góðan sigur á Tindastól

Tindastóll og Snæfell áttust við í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Síkinu á Sauðárkróki. Leikurinn hófst á fjörugum nótum en fljótlega náðu gestirnir yfirhöndinni og voru með ellefu stiga forystu eftir fyrsta leikhluta, 12:23. Leikmönnum Tindastóls gekk illa að ráða við erlenda leikmenn Snæfells auk þess sem Rebekka…Lesa meira