
Íslensku keppendurnir ásamt landsliðsþjálfaranum Mattias Möller. Ljósm. kli.is
Íslenskir keiluspilarar stóðu sig vel á móti á Möltu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Keilusamband Íslands sendi fjóra keppendur á keilumótið Malta Invitational Games sem fram fór á Möltu í síðustu viku og lauk á sunnudag. Arnar Davíð Jónsson, Elva Rós Hannesdóttir og Katrín Fjóla Bragadóttir komu frá KFR og Jóhann Ársæll Atlason frá ÍA. Á mótinu voru einungis þjóðir sem keppa á smáþjóðaleikunum og því mátti búast við góðum úrslitum. Í einstaklingskeppni karla lenti Arnar Davíð í öðru sæti í karlaflokki og Jóhann Ársæll í því áttunda. Í tvímenningi unnu þeir Arnar og Jóhann nokkuð öruggan sigur en stelpurnar urðu í öðru sæti. Í liðakeppninni eru kynin saman og eru spilaðir þrír leikir á hvern leikmann. Ísland náði gullinu þar eftir jafna keppni þar sem Malta var í öðru sæti og Kýpur í því þriðja. Þá voru einnig veitt verðlaun fyrir heildarskor úr öllum keppnum og þar varð Arnar á toppnum karlamegin og Jóhann í því fjórða. Niðurstaðan var þrjú gull, þrjú silfur og eitt brons hjá íslensku keppendunum.",
"innerBlocks": []
}