Fréttir

true

Hugmynd um sjóböð í Krossavík kynnt fyrir íbúum Hellissands

Umsókn Kára Viðarssonar, leikara og athafnamanns um Sjóböð í Krossavík við Hellissand var eitt þeirra verkefna sem hlaut í sumar styrk úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands. Verkefnið hlaut þar hæsta styrk sem veittur var, 3,7 milljónir króna. Áður hafði verkefnið hlotið 500 þúsund króna styrk frá Sóknaráætlun Vesturlands til að vinna viðskiptaáætlun undir leiðsögn Páls Kr. Pálssonar…Lesa meira

true

Grunnskólarnir allir byrjaðir

Frá og með deginum í dag eru allir grunnskólar á Vesturlandi byrjaðir vetrarstarf sitt. Síðasta skólasetningin er í dag í Stykkishólmi. Meðfylgjandi mynd var tekin í gærmorgun í skólastofunni hjá 6. bekk í Brekkubæjarskóla á Akranesi. Þar var lestrartími og krakkarnir áhugasamir að vera byrjaðir.Lesa meira

true

Góð nýting á smáhýsunum á Móum

Segja má að skortur sé á gistiplássi á Akranesi í ljósi þess að ekkert hótel er rekið í þessu tæplega átta þúsund manna samfélagi. Nokkur farfuglaheimili eru rekin í bænum og einnig stök herbergi í heimagistingu. Skammt frá bæjarmörkunum, á Móum í Hvalfjarðarsveit, hefur nú verið fjölgað smáhýsum til útleigu og eru nú sjö talsins.…Lesa meira

true

Tími rifsberjahlaupsins er núna – uppskrift

Nú fer haustið í hönd og margir huga að bústörfunum í því sambandi. Eitt þeirra er berjatínsla. Þótt berjagjafir náttúrunnar séu misgóðar eftir veðurfari er þó venjulegast alltaf hægt að nýta sér rifsber til sultugerðar að hausti. Hér á eftir fylgir uppskrift sem Helga Karlsdóttir í Borgarnesi fylgir í þeim efnum, en rifsberjahlaupið hennar þykir…Lesa meira

true

Ráðherra flutti vinnustöðina sína vestur á nes

Síðastliðinn fimmtudag var Snæfellsbær fyrsta sveitarfélagið sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra var við vinnu á landsbyggðinni. Hefur hún sett stefnuna á fjarvinnu á ýmsum stöðum á landsbyggðinni og var Snæfellsbær fyrstur í röðinni. Var Áslaug Arna með vinnuaðstöðu í félagsheimilinu Röst. Að vinnu lokinni var farið í heimsóknir og skoðunarferðir um…Lesa meira

true

,,Það er engin hugmynd svo vitlaus að það eigi ekki að prófa“

Þetta viðtal birtist fyrst í 30. tölublaði Skessuhorns, 27. júlí 2022 og birtist nú á vef Skessuhorns í heild. Eyjólfur Ingvi Bjarnason og Guðbjört Lóa Þorgrímsdóttir búa ásamt dætrum sínum tveim, Eydísi Helgu og Ernu Diljá, að Ásgarði í Dalabyggð, áður í Hvammssveit. Eyjólfur er sjötti ættliður sömu fjölskyldu sem býr í Ásgarði en ættin…Lesa meira

true

Drifkraftur verðbólgu er nú í rénun

Eftirfarandi er tilkynning frá fjármála- og efnahgsráðuneytinu. Í henni segir að staða og horfur í efnahagsmálum séu góðar. “Slaki í hagkerfinu sem myndaðist í byrjun árs 2020 er horfinn og eftirspurn er þróttmikil. Laun hafa hækkað mikið, kaupmáttur hefur vaxið afar hratt og nokkrir drifkraftar verðbólgu eru í rénun þó hún sé enn of há.…Lesa meira

true

Stofngata malbikuð á morgun

Á morgun, miðvikudaginn 24. ágúst, verður Garðagrund á Akranesi malbikuð. Standa framkvæmdir yfir frá klukkan 08:30 til 16:30. Í tilkynningu frá Akraneskaupstað kemur fram að eftirtaldar götur verða lokaðar á meðan malbikun stendur yfir: Jörundarholt, Reynigrund, Víðigrund og Ásabraut. „Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdin kann að valda,“ segir í tilkynningu frá Akraneskaupstað.Lesa meira

true

Sundlaugin Jaðarsbökkum á Akranesi opnar á morgun – 24. ágúst

Sundlaugin að Jaðarsbökkum á Akranesi opnar aftur á morgun, miðvikudaginn 24. ágúst, en hún hefur verið lokuð síðustu daga vegna árlegs viðhalds og viðgerða. Í tilkynningu á vef Akraneskaupstaðar kemur fram að það sé einungis sundlaugin sem opni 24. ágúst, ennþá sé unnið að viðhaldi á pottum, vaðlaug og rennibrautarlaug.Lesa meira

true

Fjögurra tunnu sorpkerfi til skoðunar hjá Borgarbyggð

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar hefur lagt til að stefnt skuli að innleiðingu fjögurra tunnu flokkunarkerfis við heimili í sveitarfélaginu 1. janúar 2023, sbr. lög um hringrásarhagkerfi. Fyrir lágu hugmyndir um kostnað frá Íslenska gámafélaginu vegna íláta og merkinga. Nefndin vísaði erindinu til byggðaráðs til umfjöllunar og afgreiðslu en mun einnig taka málið aftur til umfjöllunar…Lesa meira