Fréttir

true

Nýr markaðsstjóri Faxaflóahafna

Faxaflóahafnir sf. hafa ráðið Sigurð Jökul Ólafsson í stöðu markaðsstjóra og tók hann við starfinu 1. júlí. Síðastliðinn. Sigurður Jökull starfaði um árabil í Danmörku fyrir alþjóðlega ferðaheildsala við markaðs- og sölumál ásamt viðskiptaþróun fyrir áfangastaðina Noregur, Danmörk og Ísland. Hann er með MSc gráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands, þar sem lokaverkefni…Lesa meira

true

Bátadögum á Breiðafirði frestað um viku

Vegna veðurútlits hefur verið ákveðið að fresta Bátadögum á Breiðafirði 2022 til laugardagsins 16. júlí, eða um eina viku. „Hlökkum til að sjá sem flesta báta og áhafnir þeirra taka þátt þá,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Háhyrningar fara á milli Íslands og Noregs

Í ársbyrjun 2022 birti Náttúrustofa Vesturlands frétt um að kennsl hefðu verið borin á tæplega eitt þúsund mismunandi háhyrninga sem ljósmyndaðir voru við Snæfellsnes. Nú hefur í fyrsta sinn verið staðfest að villtir háhyrningar fara á milli Íslands og Noregs. Er sú niðurstaða fengin með samanburði á ljósmyndum sem staðfesta að í það minnsta þrír…Lesa meira

true

Vildu fella niður viðhald á Fellsvegi

Skorradalshreppi barst 3. júní síðastliðinn erindi frá Vegagerðinni þar sem tilkynnt er að fella eigi niður af vegaskrá Fellsveg nr. 5094-01 frá og með næstu áramótum. Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar er föst búseta ekki lengur fyrir hendi og uppfyllir vegurinn því ekki tilgreint skilyrði þess að teljast til þjóðvega. Sveitarfélagið andmælir fyrirhugaðri niðurfellingu Fellsvegar og vísar…Lesa meira

true

The Evil Pizza Delivery Boys með tónleika í Reykholti

Rokk í Reykholti er tónleikadagskrá 16. júlí næstkomandi sem helguð verður hljómsveitinni The Evil Pizza Delivery Boys. Hljómsveitin var unglingahljómsveit sem starfaði að mestu í Borgarfirði og nærsveitum af og til á árunum 1988 til 1991. Hún tók tvívegis þátt í Músíktilraunum og gerði eina breiðkassettu. Einnig hitaði hljómsveitin upp á sveitaböllum fyrir goðsagnir einsog…Lesa meira

true

Strandveiðikvótinn aukinn um rúm þúsund tonn

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur undirritað breytingu á reglugerð um veiðar í atvinnuskyni. Við breytinguna aukast aflaheimildir til strandveiða um 874 tonn af þorski, sem fengust í skiptum fyrir heimildir á makríl á skiptimarkaði, 50 ónýtt tonn sem voru færð frá frístundaveiðum og 150 ónýtt tonn vegna línuívilnunar. Samtals er því 1.074 tonnum bætt við strandveiðipottinn.…Lesa meira

true

Flauta og píanó á sumartónleikum í Saurbæ

Sunnudaginn 10. júlí kl. 16 verða Þjóðlög og ævintýri á sumartónleikum í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Þar flytja þær Sigríður Hjördís Indriðadóttir og Þóra Kristín Gunnarsdóttir verk fyrir flautu og píanó eftir Bartók, Copland og Prokofiev. Dagskrá: Béla Bartók: Suite paysanne hongroise (útsetning: Paul Arma) Aaron Copland: Dúó fyrir flautu og píanó Sergei Prokofiev: Sónata í…Lesa meira

true

Veita Skógræktinni ekki framkvæmdaleyfi á tveimur jörðum

Á fundi skipulags- og byggingarnefndar Skorradalshrepps 5. júlí síðastliðinn var tekin fyrir umsókn Skógræktar ríkisins um framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt á tveimur jörðum í hreppnum. Annars vegar var sótt um leyfi til að planta 50 þúsund birkiplöntum á 36 ha svæði í landi Bakkakots, sem að mestu er ofan 300 metra hæðar yfir sjó. Þar sem…Lesa meira

true

Hreinsuðu upp olíuleka

Olíuleka varð vart á nokkrum stöðum í Grundarfirði í morgun. Brást Slökkvilið Grundarfjarðar hratt við og hreinsaði þar sem mest var, við Kjörbúðina á Grundargötu. Var hreinsunarstarfi lokið upp úr klukkan 13. Ekki er vitað úr hvaða ökutæki olían lak.Lesa meira

true

Lemon míní á Olís í Borgarnesi

Veitingastaðurinn Lemon hefur opnað nýjan stað á Olís í Borgarnesi. Um er að ræða míní útgáfu af veitingastaðnum en þar er hægt fá brot af því besta frá Lemon. Fjórar samlokur eru í boði; Spicy chicken, Chickencado, Parmella og Pescado og fjórir safar, Nice Guy, Alabama, Good Times og Elvis. Lemon er skyndibitastaður sem að…Lesa meira