Fréttir

true

Hvalveiðar eru hafnar

Hvalur 9 kom í morgun með fyrsta hvalinn á þessar vertíð og var búið að flensa hann í Hvalstöðinni um hádegisbil. Hvalur 8 er búinn að ná annari langreyði og þar með má segja að hvalveiðar séu komnar á fullt þetta árið. Heimilt er að veiða hátt í 200 hvali á vertíðinni en veður mun…Lesa meira

true

Hvetja til ábyrgra líflambakaupa í haust

Í tilkynningu hvetur Matvælastofnun til arfgerðagreininga með tilliti til næmis gegn riðusmiti og að bændur nýti þá þekkingu í sinni ræktun. „Mikilvægt er að líflömb sem flutt eru milli bæja eða svæða til kynbóta og/eða sem nýr fjárstofn á svæðum þar sem skorið hefur verið niður vegna riðu séu arfgerðagreind. Verndandi arfgerðir gegn riðu hafa…Lesa meira

true

Landsmót 50+ hafið í Borgarnesi

Í morgun hófst keppni á Landsmóti UMFÍ 50+ í Borgarnesi. Keppni hófst í boccía, en það er ein af fjölmennustu keppnisgreinum á mótinu. Á þriðja hundrað manns yfir miðjum aldri eru skráðir til leiks í ellefu greinum, en þátttaka var ekki nægjanleg í sumum þeirra og voru þær felldar niður. Síðar í dag verður m.a.…Lesa meira

true

Þórunn ráðin forstöðumaður menningarmála í Borgarbyggð

Þórunn Kjartansdóttir hefur verið ráðin í starf forstöðumanns menningarmála í Borgarbyggð en alls bárust 16 umsóknir um starfið. Þórunn hefur góða þekkingu og reynslu í málaflokknum en hún er með meistarapróf í hagnýtri þjóðfræði og BA- gráðu í þjóðfræði og einnig er hún með kennsluréttindi. Fram kemur á heimasíðu Borgarbyggðar að Þórunn hefur undanfarið starfað…Lesa meira

true

Samkomur og skemmtanir um helgina

Margt er um að vera í menningu og samkomum í landshlutanum um helgina. Í Borgarnesi er nú hafið Landsmót 50+ á vegum UMFÍ sem stendur til sunnudags. Þá eru tvær bæjar- og héraðshátíðir. Hvalfjarðardagar standa yfir alla helgina sem og Brákarhátíð í Borgarnesi. Einnig stendur heimildamyndahátíðin IceDocs yfir á Akranesi. Þá má nefna tónleika í…Lesa meira

true

Þingvellir viðurkenndir sem fyrsta Varðan á Íslandi

Á miðvikudaginn veittu Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráherra og Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra þjóðgarðinum á Þingvöllum viðurkenningu sem fyrstu Varðan á Íslandi. Ráðherrarnir afhjúpuðu heiðursmerki Vörðu og fengu kynningu á Búðarslóð, nýrri afþreyingar- og fræðsluleið á Þingvöllum. Varðan er skilgreind þannig að umsjónaraðili áfangastaðar ferðamanna skuldbindur sig til að vera til fyrirmyndar við stjórnun og umsjón…Lesa meira

true

Heimildamyndahátíð í gangi á Akranesi

Heimildamyndahátíðin IceDocs var sett við hátíðlega athöfn í Skemmunni við Akranesvita fyrr í vikunni. Eliza Reid forsetafrú Íslands, flutti opnunarávarp og í kjölfarið var sýnd opnunarmyndin Distopia Utopia eftir skjálistamanninn Die! Goldstein. Eliza minntist á mikilvægi þess að glöggt sé gests augað og fagnaði þannig þeirri flóru erlendra heimildamynda sem myndu segja sögur á hátíðinni…Lesa meira

true

Bátadagar verða á Breiðafirði 9. júlí

Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum, gengst nú fyrir bátahátíð á Breiðafirði í fimmtánda sinn laugardaginn 9. júlí nk. Að þessu sinni verður farið til Hvalláturs þar sem rekin var afkastamikil bátasmíðastöð fram á sjöunda áratug síðustu aldar. Þar hefur teinæringurinn Egill verið geymdur allt frá árinu 1940 er hætt var að nota hann…Lesa meira

true

Sjávarútvegsfyrirtæki styrkja mannúðarsamtök í Úkraínu

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og fyrirtæki innan þeirra vébanda hafa ákveðið að styrkja þrenn hjálpar- og mannúðarsamtök í Úkraínu um 130 milljónir króna. Upphaflega var tilkynnt um gjöfina á ársfundi samtakanna 6. maí en þá lá ekki fyrir hvaða hjálparsamtök yrðu fyrir valinu. „Vart þarf að fara mörgum orðum um hið hörmulega ástand sem…Lesa meira

true

Úkraínufólk á Akranesi bauð til móttöku á þjóðhátíðardaginn

Á þjóðhátíðardaginn 17. júní bauð úkraínskt flóttafólk, sem nú er búsett á Akranesi, gestum og gangandi að koma við í gamla Landsbankahúsinu við Akratorg. Hópurinn vildi með þessu sýna þakklæti fyrir móttökurnar sem fólkið hefur fengið. Boðið var upp á úkraínska tónlist og smárétti. Andrea Vigfúsdóttir er verkefnastjóri við komu flóttafólks til Akraness. Hún segir…Lesa meira