
Þórunn Kjartansdóttir. Ljósm. borgarbyggd.is
Þórunn ráðin forstöðumaður menningarmála í Borgarbyggð
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þórunn Kjartansdóttir hefur verið ráðin í starf forstöðumanns menningarmála í Borgarbyggð en alls bárust 16 umsóknir um starfið. Þórunn hefur góða þekkingu og reynslu í málaflokknum en hún er með meistarapróf í hagnýtri þjóðfræði og BA- gráðu í þjóðfræði og einnig er hún með kennsluréttindi.\r\n\r\nFram kemur á heimasíðu Borgarbyggðar að Þórunn hefur undanfarið starfað sem kennari í Grunnskólanum í Borgarnesi. Hún hefur einnig verið stundakennari og leiðbeinandi í þjóðfræðideild Háskóla Íslands og starfað við Þjóðminjasafn Íslands, Byggðasafn Snæfellinga og Stofnun Árna Magnússonar. Hún er virk í félagsstörfum en hún hefur gegnt stöðu formanns í Félagi þjóðfræðinga á Íslandi, sat í ritstjórn Kreddu – vefrits þjóðfræðinema, hefur verið trúnaðarmaður kennara við Grunnskólann í Borgarnesi og setið í skólaráði.",
"innerBlocks": []
}