Heimildamyndahátíð í gangi á Akranesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Heimildamyndahátíðin IceDocs var sett við hátíðlega athöfn í Skemmunni við Akranesvita fyrr í vikunni. Eliza Reid forsetafrú Íslands, flutti opnunarávarp og í kjölfarið var sýnd opnunarmyndin Distopia Utopia eftir skjálistamanninn Die! Goldstein. Eliza minntist á mikilvægi þess að glöggt sé gests augað og fagnaði þannig þeirri flóru erlendra heimildamynda sem myndu segja sögur á hátíðinni að þessu sinni, en sagnalist væri samofin íslenskri menningu. Þannig myndum við öll víkka út sjóndeildarhringinn.\r\n\r\nÞetta er í fjórða skipti sem hátíðin fer fram og hefur vaxið og dafnað ár frá ári þrátt fyrir heimsfaraldur. Í ár verður boðið upp á vandaðar heimildamyndir erlendar sem innlendar og er frítt inn á alla viðburði á dagskránni. Þó er mælt með að bókað verði fyrir fram á sýningarnar. Hátíðinni lýkur svo sunnudaginn 26. júní með verðlaunaafhendingu.\r\n\r\nDagskrá og nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu hátíðarinnar, icedocs.is.",
  "innerBlocks": []
}
Heimildamyndahátíð í gangi á Akranesi - Skessuhorn