Skoða má gagnvirkan fróðleik á Búðarstíg á Þingvöllum. Það nýttu ráðherrar og aðrir gestir sér þegar Þingvellir fengu fyrstu Vörðuna. Fjölmargir brugðu símunum á loft. Ljósm. Stjórnarráðið.

Þingvellir viðurkenndir sem fyrsta Varðan á Íslandi

"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á miðvikudaginn veittu Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráherra og Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra þjóðgarðinum á Þingvöllum viðurkenningu sem fyrstu Varðan á Íslandi. Ráðherrarnir afhjúpuðu heiðursmerki Vörðu og fengu kynningu á Búðarslóð, nýrri afþreyingar- og fræðsluleið á Þingvöllum. Varðan er skilgreind þannig að umsjónaraðili áfangastaðar ferðamanna skuldbindur sig til að vera til fyrirmyndar við stjórnun og umsjón hans og að við áframhaldandi þróun sé sífellt unnið að sjálfbærni á öllum sviðum. Ráðherrarnir kynntu einnig að um næstu áramót geti staðir, óháð eignarhaldi eða umsjón, sótt um að fara í ferli til þess að verða Vörður og hljóta slíka viðurkenningu.\r\n\r\nHvað er Varða?\r\n
\r\n \t
Vörður eru merkisstaðir á Íslandi sem teljast einstakir á lands- og/eða heimsvísu. Meginaðdráttarafl þeirra eru náttúrufyrirbæri og/eða menningarsögulegar minjar sem mynda sérstætt landslag eða landslagsheildir. www.varda.is
\r\n \t
Áfangastaðirnir eru vel þekktir, hluti af ímynd landsins, fjölsóttir og hægt að heimsækja þá allt árið um kring.
\r\n \t
Heitið byggir á þeim fjölmörgu vörðum sem finnast í íslenskri náttúru. Vörður geyma sögu og arfleifð. Þær eru hlaðnar úr staðarefni, tengjast umhverfinu, vísa veginn í átt að áfangastað og mynda leiðakerfi.
\r\n \t
Til að fá afnot af vörumerkinu Vörðu þurfa umsjónaraðilar staðar að sýna fram á langtímaskuldbindingu til þess að framfylgja skilgreindum viðmiðum við stjórnun og skipulagningu hvað varðar m.a. aðgengi, gagnasöfnun, fræðslu, umhverfisvernd, sjálfbærni, yfirbragð og öryggi.
\r\n \t
Sem stendur eru þrír afar fjölsóttir en ólíkir staðir í svokölluðu prufuferli Vörðu auk Þingvalla sem hefur nú lokið því ferli. Það eru Gullfoss, Geysir og Jökulsárlón, sem eru einnig staðir í umsjón ríkisaðila. Þetta eru einna fjölsóttustu ferðamannastaðir landsins, en þeir eru misjafnlega staddir hvað þróun varðar en eiga það sameiginlegt að vera áfangastaðir í eigu ríkisins.
\r\n \t
Stefnt er að því að opna á að fleiri staðir, óháð eignarhaldi eða umsjón, geti komið í ferli frá næstu áramótum.
\r\n

"innerBlocks": []

Þingvellir viðurkenndir sem fyrsta Varðan á Íslandi - Skessuhorn