Sautján sjávarútvegsfyrirtæki leggja úkraínufólki lið. Meðal annarra G.Run í Grundarfirði. Ljósm. úr safni/tfk.

Sjávarútvegsfyrirtæki styrkja mannúðarsamtök í Úkraínu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og fyrirtæki innan þeirra vébanda hafa ákveðið að styrkja þrenn hjálpar- og mannúðarsamtök í Úkraínu um 130 milljónir króna. Upphaflega var tilkynnt um gjöfina á ársfundi samtakanna 6. maí en þá lá ekki fyrir hvaða hjálparsamtök yrðu fyrir valinu. „Vart þarf að fara mörgum orðum um hið hörmulega ástand sem nú ríkir í Úkraínu en það er von fyrirtækjanna að gjöfin megi, þótt í litlu sé, koma að gagni. Ekki síst konum og börnum,“ segir í tilkynningu frá SFS\r\n\r\n<strong>Þrjú samtök hljóta styrki</strong>\r\n\r\nSamtökin sem styrkinn hljóta eru í fyrsta lagi Caritas hjálparsamtök í Úkraínu. Styrkur til þeirra mun einkum fara til útibús samtakanna í borginni Ternopil sem er skammt frá borginni Lviv í vesturhluta landsins. Styrkurinn mun koma í góðar þarfir á þessum slóðum því þúsundir Úkraínumanna hafa flúið hörmungar í austurhluta landsins og leitað til borganna tveggja. Þar er mikill skortur á ýmsum nauðsynjum eins og mat, klæði og húsnæði.\r\n\r\nAnnars vegar hlýtur UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, styrk til að sinna börnum og fjölskyldum þeirra innan og utan Úkraínu, en talið er að allt að 60-70% barna í Úkraínu hafi flúið heimili sín. UNICEF hefur opnað barnvænar hjálparstöðvar við landamæri Úkraínu þar sem fólk á flótta getur fengið mat, rými til að hvíla sig, sálræna aðstoð og nauðsynlegar upplýsingar. Þar er flóttafólk skráð og fjölskyldur sameinaðar. Samtökin sinna einnig fylgdarlausum börnum en talið er að um 4% barna á flótta tilheyri þeim hópi. Þá senda samtökin nauðsynjar til fæðingarheimila í Úkraínu sem starfa við ömurlegar aðstæður.\r\n\r\nLoks fá UN Women styrk til að sinna neyðaraðstoð og sérstökum þörfum kvenna og jaðarsettra hópa. Eitt verkefna samtakanna snýr að því að styðja konur sem hafa verið beittar kynferðisofbeldi í stríðinu. Samtökin veita konunum athvarf, sálrænan stuðning og lögfræðiaðstoð. Mikilvægt er að koma konum og stúlkum til aðstoðar eins fljótt og hægt er og koma málum þeirra í þann farveg að hægt sé að sækja stríðsglæpamenn til saka.\r\n\r\n<strong>Þau styrkja:</strong>\r\n\r\nFyrirtækin sem standa að gjöfinni eru í stafrófsröð: Arctic Fish á Ísafirði, Brim í Reykjavík, Eskja á Eskifirði, G. Run. Í Grundarfirði, Gjögur á Grenivík, Hraðfrystihúsið Gunnvör á Hnífsdal, Huginn í Vestmannaeyjum, Iceland Pelagic í Hafnarfirði, Iceland Seafood International í Reykjavík, Ísfélagið í Vestmannaeyjum, Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði, Oddi á Patreksfirði, Rammi á Siglufirði, Samherji á Akureyri, SFS, Síldarvinnslan í Neskaupstað, Skinney-Þinganes á Höfn í Hornafirði, Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum, Vísir í Grindavík og Þorbjörn í Grindavík.",
  "innerBlocks": []
}
Sjávarútvegsfyrirtæki styrkja mannúðarsamtök í Úkraínu - Skessuhorn