{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í morgun hófst keppni á Landsmóti UMFÍ 50+ í Borgarnesi. Keppni hófst í boccía, en það er ein af fjölmennustu keppnisgreinum á mótinu. Á þriðja hundrað manns yfir miðjum aldri eru skráðir til leiks í ellefu greinum, en þátttaka var ekki nægjanleg í sumum þeirra og voru þær felldar niður. Síðar í dag verður m.a. keppt í skák, ringó og sprett úr spori í götuhlaupi. Mótssetning verður síðan í kvöld klukkan 20:30 þar sem Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands mætir.\r\n\r\n<strong>Ísfirðingarnir mættir</strong>\r\n\r\nÞeir voru glaðir og kátir fyrstu þátttakendurnir sem komu til að ná í mótsgögnin fyrir Landsmót UMFÍ 50+ í Hjálmakletti í Borgarnesi. Þetta eru þeir Guðjón Bjarnason, Reynir Pétursson og Finnur Magnússon, sem allir ætla að keppa á mótinu í boccía fyrir liðið Kubba 3 frá Ísafirði. Kubbi er aðildarfélag Héraðssambands Vestfirðinga (HSV) og er von á miklum fjölda þátttakenda þaðan á mótið í Borgarnesi. Fjórði maðurinn er Salmar Jóhannsson, sem hefur skráð sig í sund, pútt og golf. Þeim félögunum fannst vindurinn heldur vera að flýta sér í Borgarfirðinum, eins og þeir orðuðu það.\r\n\r\n<a class=\"link-to-pdf\" title=\"LM50_mótaskrá_2022_net\" href=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/06/LM50_mótaskrá_2022_net.pdf\" target=\"_blank\" rel=\"attachment noopener wp-att-54480\"><img class=\"alignnone size-medium wp-image-54481\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/06/LM50_mótaskrá_2022_net-pdf-600x851.jpg\" alt=\"thumbnail of LM50_mótaskrá_2022_net\" width=\"212\" height=\"300\" /></a>",
"innerBlocks": []
}