Fréttir

true

Þórunn ráðin forstöðumaður menningarmála í Borgarbyggð

Þórunn Kjartansdóttir hefur verið ráðin í starf forstöðumanns menningarmála í Borgarbyggð en alls bárust 16 umsóknir um starfið. Þórunn hefur góða þekkingu og reynslu í málaflokknum en hún er með meistarapróf í hagnýtri þjóðfræði og BA- gráðu í þjóðfræði og einnig er hún með kennsluréttindi. Fram kemur á heimasíðu Borgarbyggðar að Þórunn hefur undanfarið starfað…Lesa meira

true

Samkomur og skemmtanir um helgina

Margt er um að vera í menningu og samkomum í landshlutanum um helgina. Í Borgarnesi er nú hafið Landsmót 50+ á vegum UMFÍ sem stendur til sunnudags. Þá eru tvær bæjar- og héraðshátíðir. Hvalfjarðardagar standa yfir alla helgina sem og Brákarhátíð í Borgarnesi. Einnig stendur heimildamyndahátíðin IceDocs yfir á Akranesi. Þá má nefna tónleika í…Lesa meira

true

Þingvellir viðurkenndir sem fyrsta Varðan á Íslandi

Á miðvikudaginn veittu Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráherra og Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra þjóðgarðinum á Þingvöllum viðurkenningu sem fyrstu Varðan á Íslandi. Ráðherrarnir afhjúpuðu heiðursmerki Vörðu og fengu kynningu á Búðarslóð, nýrri afþreyingar- og fræðsluleið á Þingvöllum. Varðan er skilgreind þannig að umsjónaraðili áfangastaðar ferðamanna skuldbindur sig til að vera til fyrirmyndar við stjórnun og umsjón…Lesa meira

true

Heimildamyndahátíð í gangi á Akranesi

Heimildamyndahátíðin IceDocs var sett við hátíðlega athöfn í Skemmunni við Akranesvita fyrr í vikunni. Eliza Reid forsetafrú Íslands, flutti opnunarávarp og í kjölfarið var sýnd opnunarmyndin Distopia Utopia eftir skjálistamanninn Die! Goldstein. Eliza minntist á mikilvægi þess að glöggt sé gests augað og fagnaði þannig þeirri flóru erlendra heimildamynda sem myndu segja sögur á hátíðinni…Lesa meira

true

Bátadagar verða á Breiðafirði 9. júlí

Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum, gengst nú fyrir bátahátíð á Breiðafirði í fimmtánda sinn laugardaginn 9. júlí nk. Að þessu sinni verður farið til Hvalláturs þar sem rekin var afkastamikil bátasmíðastöð fram á sjöunda áratug síðustu aldar. Þar hefur teinæringurinn Egill verið geymdur allt frá árinu 1940 er hætt var að nota hann…Lesa meira

true

Sjávarútvegsfyrirtæki styrkja mannúðarsamtök í Úkraínu

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og fyrirtæki innan þeirra vébanda hafa ákveðið að styrkja þrenn hjálpar- og mannúðarsamtök í Úkraínu um 130 milljónir króna. Upphaflega var tilkynnt um gjöfina á ársfundi samtakanna 6. maí en þá lá ekki fyrir hvaða hjálparsamtök yrðu fyrir valinu. „Vart þarf að fara mörgum orðum um hið hörmulega ástand sem…Lesa meira

true

Úkraínufólk á Akranesi bauð til móttöku á þjóðhátíðardaginn

Á þjóðhátíðardaginn 17. júní bauð úkraínskt flóttafólk, sem nú er búsett á Akranesi, gestum og gangandi að koma við í gamla Landsbankahúsinu við Akratorg. Hópurinn vildi með þessu sýna þakklæti fyrir móttökurnar sem fólkið hefur fengið. Boðið var upp á úkraínska tónlist og smárétti. Andrea Vigfúsdóttir er verkefnastjóri við komu flóttafólks til Akraness. Hún segir…Lesa meira

true

Hanar úr þéttbýli og nautgripir innan girðinga

Nýlega var afgreidd ný búfjársamþykkt fyrir sveitarfélagið Borgarbyggð, en þar er búskapur stundaður víða. Í samþykktinni er kveðið á um ýmsa þætti er lúta að búfjárhaldi. Helsta breytingin er sú að nú er lausaganga stórgripa bönnuð í öllu sveitarfélaginu. Umráðamönnum stórgripa er því skylt að hafa þá í vörslu innan gripaheldra girðinga sbr. reglugerð um…Lesa meira

true

Jörð skelfur undir Langjökli

Klukkan 22:12 í kvöld varð snarpur jarðskjálfti að stærðinni 4,6. Samkvæmt fyrstu vísbendingum Veðurstofunnar  átti hann upptök sín undir Langjökli, um 14 km suður af Eiríksjökli Skjálftinn fannst vel í uppsveitum Borgarfjarðar, allt á Akranes og í Stykkishólm, og samkvæmt öðrum fréttamiðlum og fólki á samfélagsmiðlum fannst hann einnig á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu. Tveir…Lesa meira

true

Nemendur í Hvanneyradeild GBF buðu fólki frá Úkraínu á hestbak

Nemendur í Grunnskóla Borgarfjarðar, Hvanneyrardeild, héldu fjáröflun og buðu flóttafólki frá Úkraínu, sem nú heldur til á Bifröst, á hestbak í síðustu viku. Á hverju ári standa nemendur fyrir slíku verkefni þar sem þeir selja m.a. jólakort og rennur ágóðinn til styrktar góðu málefni í samfélaginu. Í ár völdu krakkarnir að styrkja fólkið frá Úkrainu…Lesa meira