Fréttir

true

Ný Borgfirðingabók komin í dreifingu

Sögufélag Borgarfjarðar hefur gefið út 23. árgang Borgfirðingabókar. Bókin er 290 síðna kilja, ríkulega myndskreytt og hefur að þessu sinni að geyma 19 greinar eftir ýmsa höfunda. Í formála, sem Ingibjörg Daníelsdóttir og Guðmundur Þór Brynjúlfsson skrifa, segja þau að stefna ritnefndar sé að hafa efni fjölbreytt og horfa til margra þátta, en eðli málsins…Lesa meira

true

Stuð á Smiðjutorgshátíð á Akranesi

Í dag á milli klukkan þrjú og fimm á Akranesi er hægt að gera sér glaðan dag inni í Smiðjutorgi á Akranesi. Skemmtunin var færð inn vegna veðurs og er boðið upp á andlitsmálningu, hárspreyjun, pítsu, nammi og Maggi Mix sér um tónlistina og stuðið. Því er um að gera að skella sér með krakkaskarann…Lesa meira

true

Sumartónleikar í Hallgrímskirkju á sunnudaginn

Sunnudaginn 26. júní kl. 16 munu Rósa, Rímsen og Tríó Zimsen, syngja, kveða og leika á hljóðfæri í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Tónleikarnir eru liður í sumartónleikaröð í kirkjunni. Undanfarin ár hefur fjölskylda Rósu Jóhannesdóttur komið fram á ýmsum stöðum, leikandi á fiðlur, harmonikku, ukulele og píanó, ásamt söng og kveðskap. Börnin sem kalla sig Tríó Zimsen,…Lesa meira

true

Viðhald á efstu Hvítárbrúnni

Brúin yfir Hvítá, milli Húsafells og Kalmanstungu í Borgarfirði, verður lokuð í dag og næstu tvo daga vegna framkvæmda. Vegagerðin bendir á hjáleið um Hvítársíðuveg (523). Meðfylgjandi mynd tók Þórður Kristleifsson á Húsafelli í gær. Þar má sjá hvernig búið er að lyfta brúardekkinu af og unnið við burðarvirkið.Lesa meira

true

Niðurstaða hugmyndasamkeppni og íbúafundur á Breið

Í byrjun næstu viku verða tvennir viðburðir sem tengjast Breiðarsvæðinu á Akranesi. Í fyrst lagi verður kynning mánudaginn 27. júní klukkan 15 þar sem Breið þróunarfélag í samstarfi við Brim hf., Akraneskaupstað og Arkitektafélag Íslands, mun kynna niðurstöður hugmyndasamkeppni í Hafbjargarhúsinu á Breið. Kynntar verða niðurstöður dómnefndar í hugmyndasamkeppninni um framtíðarskipulag á Breiðinni, en alls…Lesa meira

true

Markaregn hjá Kríu og Reyni Hellissandi

Það er óhætt að segja að það hafi rignt mörkum á Vivaldi vellinum á Seltjarnarnesi á þriðjudagskvöldið þegar Kría og Reynir frá Hellissandi tókust á í A riðli 4. deildar karla í knattspyrnu. Fjörið byrjaði strax á fyrstu mínútu þegar Kría komst yfir í leiknum og korteri seinna var staðan orðin 3-0 fyrir Kríu. Ingvar…Lesa meira

true

Tónleikar til styrktar Kidda Jens

Haldnir verða styrktartónleikar fyrir Kristinn Jens Kristinsson í Tónlistarskólanum á Akranesi á morgun, föstudaginn 24. júní klukkan 20. Eins og mörgum er kunnugt glímir Kiddi við endalaus veikindi með tilheyrandi kostnaði og er ætlunin að létta aðeins undir með honum. Listamenn af Akranesi ætla að gefa vinnu sína og þeir sem koma fram eru: Rakel…Lesa meira

true

Stærsta útskrift frá upphafi Háskólans á Bifröst

Laugardaginn 18. júní síðastliðinn var stærsta útskrift í sögu Háskólans á Bifröst. Alls voru 134 nemendur brautskráðir; 22 úr háskólagátt, 40 úr bakkalárnámi og 72 úr meistaranámi. Grunnnámsnemendur skiptust þannig á milli deilda að 17 útskrifuðust frá viðskiptadeild, 17 úr félagsvísindadeild og sex úr lagadeild. Skipting meistaranema eftir deildum var síðan þannig að 60 luku…Lesa meira

true

Ný stjórn SSV kjörin á aukaaðalfundi

Aukaaðalfundar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og Heilbrigðisnefndar Vesturlands var haldinn á Hótel Hamri í Borgarnesi í gær. Þar var kosið í stjórn SSV, en slíkt er nauðsynlegt nú í ljósi þess að sveitarstjórnarkosningar eru afstaðnar og nýir fulltrúar hafa tekið sæti í sveitarstjórnum. Þá fór einnig fram kynning á starfsemi SSV. Formaður stjórnar SSV var…Lesa meira

true

Steini lauk í gær við að hjóla Vestfjarðahringinn

Síðdegis í gær renndi Borgnesingurinn Þorsteinn Eyþórsson á hjólinu sínu inn í Borgarnes og lauk þar með því afreki að hjóla Vestfjarða-hringinn á tíu dögum. Þorsteinn lagði af stað 12. júní síðastliðinn en í fylgd með honum var Anna Þórðardóttir eiginkona hans á húsbíl sem þau notuðu sem áningarstað. Þegar Þorsteinn, eða Steini eins og…Lesa meira