Fréttir

true

Bíll brann á brúnni

Síðdegis í gær kom upp eldur í bíl syðst á Borgarfjarðarbrúnni. Slökkvilið og viðbragðsaðilar voru kvaddir á vettvang. Vegna þessa urðu talsverðar tafir á umferð um brúna, einkum voru það ferðalangar á suðurleið sem þurftu að bíða lengi meðan aðgerðir stóðu yfir. Bílaröðin náði því langt upp fyrir Borgarnes. Engin slys urðu á fólki.Lesa meira

true

Lokað í Hvalfjarðargöngum næstu kvöld og nætur vegna alþrifa

Fram kemur á heimasíðu Vegagerðarinnar að Hvalfjarðargöngin verða lokuð vegna alþrifa nokkrar nætur í vikunni. Lokað verður í kvöld, mánudaginn 13. júní, þriðjudaginn 14. júní og miðvikudaginn 15. júní og verður lokunin alla dagana frá klukkan 22:00 og til 06.30 og verður umferð beint um Hvalfjörð um veg 47. Athygli vekur að lokun hefst klukkan…Lesa meira

true

Ráðuneytið staðfesti ákvörðun Matvælastofnunar um vörslusviptingu

Nýlega staðfesti matvælaráðuneyti ákvörðun Matvælastofnunar frá 8. október 2021 um að svipta sauðfjárbónda vörslum alls fjár síns. Bóndinn hafði kært vörslusviptinguna til ráðuneytis. „Frá árinu 2019 hafði stofnunin gert ítrekaðar athugasemdir við aðbúnað sauðfjár á bæ kærandans. Athugasemdir stofnuninarinnar lutu að mörgum þáttum svo sem slysavörnum, brynningu, fóðrun, holdafari, smitgát, gólfi í fjárhúsum, ástandi girðinga…Lesa meira

true

Mannlaus bíll rann út í bæjarlækinn

Á tíunda tímanum í gærkveldi varð það óhapp að bifreið rann frá bílastæðinu við Ólafsvíkurkirkju og niður í bæjarlækinn. Að sögn lögreglu var bifreiðin mannlaus þegar óhappið varð, hafði verið sett í handbremsu en ekki í gír.Lesa meira

true

Skagakonur með fyrsta sigurinn

Langt ferðalag var að baki hjá kvennaliði ÍA um helgina en þær gerðu sér ferð á Vopnafjörð og léku við lið Einherja í 2. deild kvenna í knattspyrnu í gær. Fyrir leik voru bæði lið án sigurs, Einherji hafði tapað tveimur leikjum og ÍA fyrir Fram 3-0 í sínum fyrsta leik. Þetta var því mikilvægur…Lesa meira

true

Yngstu skátar landsins sameinuðust í tjaldbúðum

Drekaskátar, sem eru skátar á aldrinum 7-9 ára, fengu loks tækifæri til að hittast á skátamóti sem haldið var á Úlfljótsvatni helgina 10.-12. júní. Þangað mættu um 160 drekaskátar af öllu landinu ásamt 80 fararstjórum, foringjum og sjálfboðaliðum sem sáu um veglega dagskrá fyrir skátana. Ævintýraþema var þessa helgi, þar sem skátarnir fengu að spreyta…Lesa meira

true

Dökk mynd af stöðu sauðfjárræktar dregin upp í nýrri skýrslu

Dregin er upp dökk mynd af stöðu sauðfjárræktar á Íslandi í nýrri samantekt Byggðastofnunar, sem unnin var að beiðni Sigurðar Inga Jóhannssonar, innviðaráðherra og ráðherra byggðamála. Í samantekinni segir að rekstrarafkoma sauðfjárbúa, fyrir fjármagnsliði og afskriftir, hafi verið neikvæð frá árinu 2018. Ekki væri útlit fyrir að rekstur sauðfjárbúa batni á næstu árum og að…Lesa meira

true

Púttkeppni eldri borgara á Akranesi og í Borgarbyggð

Fimmtudaginn 16. júní fer fram að Hamri í Borgarnesi fyrsta viðureign sumarsins hjá eldri borgurum úr Borgarbyggð og Akranesi í pútti. Verður þá keppt um farandbikar sem Húsasmiðjan á Akranesi gaf. Fyrsta keppnin í þessu samstarfi félaganna fór fram 2013 og er þetta því í tíunda sinn sem liðin mætast, en keppa skal um gripinn…Lesa meira

true

Viðbragðteymi vegna álags í bráðaþjónustu

Heilbrigðisyfirvöld hafa að frumkvæði heilbrigðisráðuneytisins og í samræmi við ráðleggingar landlæknis, myndað viðbragðsteymi um bráðaþjónustu í landinu vegna alvarlegrar stöðu innan hennar. Kemur þessi alvarlega staða skýrast fram á bráðamóttöku Landspítalans þar sem öryggi sjúklinga er ógnað, að mati landlæknis. „Samstarf aðila þvert á heilbrigðiskerfið er nauðsynlegt til að tryggja fullnægjandi og örugga bráðaþjónustu næstu…Lesa meira

true

Kristín vann silfur á HM í kraftlyftingum

Kraftlyftingakonan og Borgfirðingurinn Kristín Þórhallsdóttir keppti í gær í mínus 84 kílóa flokki á heimsmeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum en mótið fór fram í borginni Sun City í Suður Afríku. Kristín sem er önnur á heimlistanum og ríkjandi Evrópumeistari stóð fyllilega undir væntingum, vann silfur í sínum flokki og kemur heim hlaðin verðlaunapeningum og nýjum metum.…Lesa meira