Á bráðadeild Landspítalans. Ljósm. Stjórnarráðið.

Viðbragðteymi vegna álags í bráðaþjónustu

"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Heilbrigðisyfirvöld hafa að frumkvæði heilbrigðisráðuneytisins og í samræmi við ráðleggingar landlæknis, myndað viðbragðsteymi um bráðaþjónustu í landinu vegna alvarlegrar stöðu innan hennar. Kemur þessi alvarlega staða skýrast fram á bráðamóttöku Landspítalans þar sem öryggi sjúklinga er ógnað, að mati landlæknis. „Samstarf aðila þvert á heilbrigðiskerfið er nauðsynlegt til að tryggja fullnægjandi og örugga bráðaþjónustu næstu mánuði,“ segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.\r\n\r\nViðbragðsteymið samanstendur af heilbrigðisráðuneytinu, embætti landlæknis, Sjúkratryggingum Íslands, Landspítala, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Læknavaktinni, Samtökum heilbrigðisfyrirtækja og Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu.\r\n\r\nOrsakirnar vandans nú eru sagðar margþættar en þyngst vegur skortur á heilbrigðisstarfsfólki og skortur á úrræðum fyrir aldraða, færniskerta og fleiri viðkvæma hópa. Mikill skortur er á heilbrigðisstarfsfólki á öllum heilbrigðisstofnunum um leið og það er mjög brýnt að starfsfólk fái langþráða hvíld og sumarleyfi. Einnig eykst álag á bráðahluta þjónustunnar með aukinni virkni samfélagsins á sumrin og auknum fjölda erlendra ferðamanna. Unnið er eftir fremsta megni að því að auka heimaþjónustu og framboð á hjúkrunar- og endurhæfingarrýmum um allt að 125 á suðvesturhorni landsins fyrir lok þessa árs.\r\n\r\nHlutverk viðbragðsteymisins er að útfæra tillögur ásamt tímasettri áætlun um aðgerðir til að takast á við þetta verkefni, fylgja eftir framkvæmd þeirra og tryggja virkt samstarf milli allra aðilanna. Viðbrögð og aðgerðir fyrir næstu vikur fela m.a. í sér að:\r\n
\r\n \t
Samhæfa aðgerðir og þétta samstarf allra aðila sem koma að bráðaþjónustu í heilbrigðiskerfinu.
\r\n \t
Styrkja og auka heimahjúkrun á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við Heilsugæslu höfuðborgasvæðisins, Læknavaktina og Landspítala.
\r\n \t
Efla starfsemi bráðamóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og Heilbrigðisstofnunar Vesturlands. Liður í því er að bæta úrlestur myndrannsókna og úrvinnslu blóðrannsókna í samvinnu við Landspítala.
\r\n \t
Auka þjónustu bráðadagdeildar Landspítala og stækka aðstöðuna.
\r\n \t
Útbúa miðstöð tilvísana- og ráðgjafar innan Landspítala til að stýra betur aðflæði inn á spítalann, efla fjarþjónustu og samstarf milli stofnana.
\r\n \t
Bæta ferla innan Landspítala til að stytta dvöl sjúklinga á bráðamóttöku spítalans. Liður í því er að endurskoða meðferðarferla í öldrunarþjónustu og auka aðkomu fleiri sérgreina að þjónustu við sjúklinga á bráðamóttökunni.
\r\n \t
Viðbragðsteymið mun halda reglulega samráðsfundi vegna stöðunnar meðan að þörf krefur og kalla aðra að borðinu eftir þörfum.
\r\n

"innerBlocks": []

Viðbragðteymi vegna álags í bráðaþjónustu - Skessuhorn