
Skátastarf. Ljósm. úr safni BÍS.
Yngstu skátar landsins sameinuðust í tjaldbúðum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Drekaskátar, sem eru skátar á aldrinum 7-9 ára, fengu loks tækifæri til að hittast á skátamóti sem haldið var á Úlfljótsvatni helgina 10.-12. júní. Þangað mættu um 160 drekaskátar af öllu landinu ásamt 80 fararstjórum, foringjum og sjálfboðaliðum sem sáu um veglega dagskrá fyrir skátana.\r\n\r\nÆvintýraþema var þessa helgi, þar sem skátarnir fengu að spreyta sig í fjölbreyttri dagskrá, t.d. klifri, bogfimi, svampakasti, vatnasafaríi og bátadagskrá svo fátt eitt sé nefnt. Sú nýlunda var þetta árið að mótið var heila helgi en hefur hingað til verið ein gistinótt. Skátarnir koma víða að, m.a. frá Akureyri, Vestmannaeyjum og úr Dölum. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og verndari íslensku skátahreyfingarinnar, heimsótti ungu skátana og flutti þeim ávarp á kvöldvöku á laugardagskvöldinu. Drekaskátarnir gróðursettu um 1000 tré til að kolefnisjafna þennan viðburð ásamt fleirum á komandi sumri enda eru þrjú önnur skátamót fyrir ólík aldursbil á döfinni í sumar.\r\n\r\nMótið var skipulagt og framkvæmt af teymi ungra sjálfboðaliða sem flestir eru á aldrinum 17-25 ára. En eitt meginmarkmið skátahreyfingarinnar er að gera ungu fólki kleift að takast á við krefjandi og spennandi verkefni.",
"innerBlocks": []
}