Fréttir

true

Kynningarfundur um nýsköpunarhraðal meðal kvenna

Nýsköpunarhraðall fyrir konur verður nú haldinn í annað sinn, en hann er á vegum AWE, Háskóla Íslands og Bandaríska sendiráðsins. Á morgun fimmtudag, verður haldinn kynningarfundur á netinu um hraðalinn og fer hann fram klukkan 12:00. Um er að ræða stafrænan fund sem konur skrá sig á til að fá frekari upplýsingar og eftir það…Lesa meira

true

Flugeldasalan að hefjast hjá björgunarsveitunum

Nú er flugeldasala björgunarsveita Landsbjargar að hefjast víðs vegar um landið og mun standa fram á gamlársdag. Afrakstur af sölu flugelda rennir stoðum undir víðtækt starf Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem miðar að því að bjarga mannslífum, verðmætum og koma í veg fyrir slys. Um eitt hundrað sveitir sjálfboðaliða eru til taks allan sólarhringinn, alla daga ársins.…Lesa meira

true

Stíft róið þegar gefur til sjós

Smærri línubátar hafa róið stíft frá Snæfellsbæ að undanförnu þrátt fyrir rysjótta tíð. Bátar hafa sótt suður fyrir Öndverðarnes til þess að komast í skjól frá norðaustan áttinni. Kvika SH er búin að landa tvisvar á Arnarstapa og verið með í kring um átta tonn í róðri, en Indriði Kristins BA var við bjargið og…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði gegn Hetti

Skallagrímur tók á móti Hetti frá Egilsstöðum í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Skallagrímur var fyrir leikinn með tíu stig í sjöunda sæti deildarinnar en Hattarmenn í því þriðja með 18 stig. Gestirnir byrjuðu betur í leiknum og komust í 0:5 strax á fyrstu mínútu…Lesa meira

true

Veiran í miklum vexti á Vesturlandi

Eins og við var að búast dreifist nú covid-veiran um landsbyggðina, en hún hefur verið í sögulegu hámarki á höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga og smitin aldrei verið fleiri. Nú eru 116 í einangrun á Vesturlandi og 230 að auki í sóttkví. Alls snertir því veiran 346 einstaklinga í landshlutanum, eða 2,17%. Á Akranesi eru nú 62…Lesa meira

true

Best skreytta húsið í Stykkishólmi valið

Hefð hefur skapast fyrir því síðustu ár að veitt eru verðlaun fyrir best skreytta húsið í Stykkishólmi fyrir jólin en þetta kemur fram á vefsíðu Stykkishólmsbæjar. Níundi bekkur grunnskólans sá um valið og veitti viðurkenningu fyrir en það var fjölskyldan að Hjallatanga 4 í Stykkishólmi sem hlaut viðurkenninguna þetta árið.Lesa meira

true

Metfjöldi í smitum innanlands í gær

Alls greindust 836 með kórónuveiruna innanlands í gær. Aldrei áður hafa svo margir greinst með kórónuveiruna hér á landi á einum sólarhring frá upphafi faraldursins. 482 af þeim 836 sem greindust innanlands í gær voru utan sóttkvíar við greiningu eða 58 prósent. 354 voru í sóttkví eða 42 prósent. Þetta kemur fram á síðunni covid.is…Lesa meira

true

Kjöri Íþróttamanns Akraness lýst á ÍATV 6. janúar

Hið árlega kjör Íþróttamanns Akraness fer fram fimmtudaginn 6. janúar og stendur kosning til og með 3. janúar 2022. Vegna Covid-19 þá er þetta annað árið í röð sem ekki öll aðildarfélög ÍA geta verið með tilnefningar en ekki var hægt að halda alla þá viðburði sem áætlaðir voru árið 2021. Úrslit verða kunngerð þann…Lesa meira

true

Frjósöm mandarína dúkkar upp í Ólafsvík

“Ég var að gæða mér á þessari mandarínu um jólin. Þegar fyrsti báturinn fór upp í mig þá varð ég var við fjóra steina og sama fjölda í þeim næsta,“ segir Þröstur Albertsson í Ólafsvík. „Þá hugsaði ég um að henda henni, en af eðlislægri forvitni þá langaði mig að vita hversu margir steinar gætu…Lesa meira

true

Gilsfjarðarlína sett í jörð í Reykhólahreppi

Á Þorláksmessu var raflínan frá Króksfjarðarnesi að Gilsfjarðarmúla tekin úr sambandi, líklega í síðasta skipti en frá þessu segir á vef sveitarfélagsins. Við þetta fækkar enn loftlínum í Reykhólahreppi en við hennar hlutverki tók þriggja fasa jarðstrengur sem lokið var að plægja niður í sumar. Gilsfjarðarlína, sem er rúmlega sex kílómetra löng, var orðin afar…Lesa meira