Línuleiðin; Gróustaðir næst, svo Garpsdalur og Gilsfjarðarmúli fjærst. Ljósm. af vef Reykhólahrepps.

Gilsfjarðarlína sett í jörð í Reykhólahreppi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á Þorláksmessu var raflínan frá Króksfjarðarnesi að Gilsfjarðarmúla tekin úr sambandi, líklega í síðasta skipti en frá þessu segir á vef sveitarfélagsins. Við þetta fækkar enn loftlínum í Reykhólahreppi en við hennar hlutverki tók þriggja fasa jarðstrengur sem lokið var að plægja niður í sumar.\r\n\r\nGilsfjarðarlína, sem er rúmlega sex kílómetra löng, var orðin afar viðhaldsfrek og óörugg í vondu veðri enda orðin meira en hálfrar aldar gömul. Ætlunin er að nýi jarðstrengurinn sem nú flytur rafmagn inn í Gilsfjörð flytji rafmagn frá Galtarvirkjun í Garpsdal inn á kerfið þegar hún kemst í gagnið.",
  "innerBlocks": []
}
Gilsfjarðarlína sett í jörð í Reykhólahreppi - Skessuhorn