{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Hið árlega kjör Íþróttamanns Akraness fer fram fimmtudaginn 6. janúar og stendur kosning til og með 3. janúar 2022. Vegna Covid-19 þá er þetta annað árið í röð sem ekki öll aðildarfélög ÍA geta verið með tilnefningar en ekki var hægt að halda alla þá viðburði sem áætlaðir voru árið 2021. Úrslit verða kunngerð þann 6. janúar 2022 í beinu streymi frá Garðavöllum í gegnum You Tube rás ÍATV. Þeir sem tilnefndir eru í stafrófsröð eru eftirfarandi:\r\n\r\nKylfingur ársins hjá Golfklúbbnum Leyni er Björn Viktor Viktorsson. Björn Viktor var þrisvar í öðru sæti á unglingamótaröðinni. Hann var valinn í piltalandslið Íslands fyrir Evrópumót liða sem haldið var í Eistlandi og var það hans fyrsta landsliðsverkefni. Hann endaði svo í 2. sæti á heildarstigalista sumarsins en það er tveimur sætum ofar en árið 2020. Björn Viktor mætir á allar æfingar með því markmiði að bæta sig og er mikil fyrirmynd fyrir okkar yngri kylfinga.\r\n\r\nKnattspyrnukona ársins hjá KFÍA er Dana Joy Scheriff. Dana var lykilmaður í meistaraflokki kvenna á árinu. Hún lék 18 leiki í Lengjudeildinni og skoraði í þeim 4 mörk. Einnig lék hún einn leik í Mjólkurbikarkeppninni. Dana var lykilleikmaður í ungu liði Skagamanna og hennar styrkur hafði mikið að segja í baráttu liðsins um að reyna að halda sæti sínu í deildinni.\r\n\r\nBadmintonmaður/kona ársins er Drífa Harðardóttir. Drífa er ein af bestu tvíliða- og tvenndarleiksspilurum á Íslandi. Hún varð Íslandsmeistari í tvíliða- og tvenndarleik í meistaraflokki. Þá varð hún einnig Heimsmeistari í flokki 40-44 ára í tvíliða- og tvenndarleik. Drífa er okkar fremsta badmintonkona, hún hefur alla tíð spilað fyrir ÍA á Íslandi en hún býr og æfir í Danmörku. Drífa leggur áherslu á tvíliða- og tvenndarleik og spilar þær greinar með liði sínu í deildakeppni í Danmörku. Hún hefur orðið Íslandsmeistari tólf sinnum, fimm sinnum í tvíliðaleik og sjö sinnum í tvenndarleik. Drífa er eina konan sem hefur orðið Íslandsmeistari í meistaraflokki fyrir ÍA, hún er einnig sá badmintonspilari frá Íslandi sem hefur oftast orðið Heimsmeistari eldri spilara eða þrisvar sinnum. Drífa kemur reglulega til Íslands og kemur alltaf á æfingar hjá ÍA. Hún hvetur krakkana áfram og leiðbeinir þeim. Hún er góð fyrirmynd fyrir badmintonkrakka, innan vallar sem utan.\r\n\r\nSundmaður ársins er Enrique Snær Llorens Sigurðsson. Enrique Snær er Íslandsmeistari í 400 metra fjórsundi. Enricue æfir ellefu sinnum í viku og hefur sýnt miklar framfarir á árinu þar sem hann er orðinn einn fremsti fjórsundsmaður á Íslandi og náði hann 6. besta tíma í 400 metra fjórsundi á Íslandi frá upphafi. Enrique vann til fjölda verðlauna á Íslandsmeistaramótum á árinu og var mjög nálægt því að vinna fleiri Íslandsmeistaratitla. Enrique bætti átta Akranesmet á árinu, þar sem hann bætti Akranesmetin í 400 metra fjórsundi um ellefu sekúndur og í 400 metra skriðsundi um sjö sekúndur. Enrique æfir mjög vel og verður spennandi að fylgjast með Enrique næstu árin.\r\n\r\nKnattspyrnumaður ársins hjá KFÍA er Ísak Snær Þorvaldsson. Ísak Snær var einn besti leikmaður Skagamanna í Pepsi Max deildinni í ár. Hann lék 20 leiki í Pepsi Max deildinni og skoraði í þeim þrjú mörk. Hann lék einnig fimm leiki í Mjólkurbikarkeppninni og skoraði í þeim eitt mark. Ísak Snær er mikill keppnismaður sem smitar út frá sér til annarra leikmanna liðsins. Hann er frábær liðsmaður og góð fyrirmynd bæði utan sem innan vallar.\r\n\r\nHestamaður ársins er Jakob Svavar Sigurðsson. Jakob varð í 2. sæti samanlagðri stigakeppni í Meistaradeildinni í hestaíþróttum síðastliðinn vetur en þar er keppt í átta keppnisgreinum og aðeins bestu knapar landsins fá að taka þátt. Hann var Íslandsmeistari í slaktaumatölti á hestinum Kopar frá Fákshólum og líka Íslandsmeistari í samanlögðum fjórgangsgreinum (tölt, stökk, brokk og fet- og slaktaumatölt) á hestinum Hálfmána frá Steinsholti. Þeir stóðu líka efstir á afar sterku töltmóti á Fjórðungsmóti Vesturlands sem haldið var í Borgarnesi í sumar. Jakob Svavar var valinn íþróttaknapi Landssambands Hestamannafélaga á uppskeruhátíð samtakanna í haust. Jakob Svavar Sigurðsson er í landsliðinu í hestaíþróttum og átti hann meðal annars að keppa á heimsmeistaramóti íslenska hestsins sem fram átti að fara í Herning í Danmörku í ágúst síðastliðinn en mótið var fellt niður vegna Covid.\r\n\r\nKraftlyftingamaður/kona ársins er Kristín Þórhallsdóttir. Kristín sýndi og sannaði á árinu að hún er besta kraftlyftingakona Íslands frá upphafi og fylgdi ótrúlegum árangri sem hún náði í fyrra vel eftir. Hún setti fjöldann af Íslandsmetum og einnig tvö Evrópumet. Kristín situr fast í 2. sæti heimslistans og er efst á styrkleikalista Evrópu í sínum þyngdarflokki. Hún er frábær fyrirmynd sem leggur sitt af mörkum fyrir félagið og æfingafélagana og slær hvergi slöku við þegar hvetja þarf aðra áfram eða vinna að innviðum félagsins. Kristín er að bæta sig á hverju móti og þó hún hafi bara verið að keppa í tvö ár er hún strax orðin mjög öflugur keppandi á heimsvísu sem er tekið eftir hvar sem hún kemur. Kristín var valin Kraftlyftingamaður/kona ársins 2021 hjá Kraftlyftingasambandi Íslands nú fyrir stuttu.\r\n\r\nKaratemaður ársins er Kristrún Bára Guðjónsdóttir. Kristrún Bára keppti á RIG 2021 Reykjavík International Games í kata, þar náði hún 5. sæti í female seniors og 3. sæti í female juniors. Hún varð í 3. sæti í Grand Prix mótaröðinni í flokki fullorðinna. Á Íslandsmótinu í kata varð hún í 5. sæti í flokki fullorðinna í kata kvenna. Kristrún Bára keppti núna í nóvember fyrir landslið Íslands í karate. Á Norðurlandamótinu í Stavanger í Noregi varð hún Norðurlandameistari í hópkata í flokki fullorðinna. Kristrún hefur verið í unglingalandsliði og landsliði Íslands. Þar hefur hún keppt á nokkrum mótum erlendis. Kristrún Bára hefur núna verið aðstoðarþjálfari hjá Karatefélagi Akraness í þrjú ár og þjálfar þar með yfirþjálfara félagsins. Þar er hún að standa sig vel og er góð fyrirmynd fyrir iðkendur félagsins.\r\n\r\nKnattspyrnumaður ársins hjá Kára er Marinó Hilmar Ásgeirsson. Marinó Hilmar lék á árinu 18 leiki með Kára og skoraði í þeim átta mörk, hann var valinn leikmaður 2. umferðar í 2. deildinni þegar hann skoraði glæsilega þrennu gegn KV. Marinó Hilmar hefur leikið með Kára síðustu átta ár og verið einn af lykilmönnum félagsins en hann náði þeim frábæra árangri í sumar að verða leikjahæsti leikmaður Kára frá upphafi með 120 leiki. Marinó Hilmar er leikinn og fljótur leikmaður með stórt Kárahjarta.\r\n\r\nFimleikakona ársins er Salka Brynjarsdóttir. Salka æfir hópfimleika með meistaraflokki FIMA og hefur verið lykilmaður í liði meistaraflokks síðustu ár. Salka er þeim góðu kostum gædd að í kringum hana ríkir alltaf mikil gleði og jákvæðni sem eru mikilvægir kostir að hafa í hópíþróttum. Salka á stóran þátt í að skapa þá góðu liðsheild og samstöðu sem ríkir í hópi meistaraflokks. Hún er vinnusöm og hvetjandi. Salka setur sér háleit markmið sem hún leggur hart að sér við að ná. Salka ber af í gólfæfingum og eykur ört við erfiðleika í æfingum á trampólíni og dýnu. Við eigum eftir að sjá þessa frábæru fimleikakonu halda áfram að vaxa í íþróttinni næstu árin.\r\n\r\nSkotmaður ársins er Stefán Gísli Örlygsson. Stefán Gísli æfir með Skotfélagi Akraness og er í landsliði Íslands í leirdúfuskotfimi. Stefán var í toppbaráttunni á öllum skotmótum á Íslandi síðastliðið sumar og varð Íslandsmeistari í greininni. Stefán keppti á tveimur mótum erlendis á árinu, heimsbikarmóti á Ítalíu og Evrópumeistaramótinu í Króatíu. Stefán er mikill keppnismaður, góður liðsmaður og viljugur til að miðla af sinni þekkingu. Stefán varð Íslandsmeistari í ár í leirdúfuskotfimi og er í landsliði Íslands.\r\n\r\nKörfuknattleiksmaður ársins er Þórður Freyr Jónsson. Þórður Freyr var einn af burðarásum í 10. flokks liði ÍA sem komst í undanúrslit Íslandsmótsins. Hann lét töluvert að sér kveða í meistaraflokksliði ÍA sem hafnaði í 2. sæti annarrar deildar. Þórður spilar núna stórt hlutverk í meistaraflokksliði ÍA í 1. deild. Þórður Freyr var í U16 ára landsliði Íslands, sem vann til bronsverðlauna á Norðurlandamótinu og var það haldið í Finnlandi í sumar. Einnig var Þórður Freyr nýlega valinn í æfingahóp U18 ára landsliðið. Þórður Freyr er metnaðarfullur leikmaður sem leggur mikið á sig til að ná lengra.\r\n\r\nKlifrari ársins er Þórkatla Þyrí Sturludóttir. Þórkatla Þyrí átti gott mótaár árið 2021 og sigraði með yfirburðum í C-flokki 12-13 ára á Íslandsmeistaramótaröðinni í grjótglímu, með þrjú gull og eitt silfur. Á ÍM í línuklifri landaði hún góðu silfri og það sama má segja um Bikarmeistaramót Íslands í grjótglímu. Þórkatla Þyrí er samviskusöm og dugleg, leggur metnað í allar æfingar og það verður gaman að fylgjast með henni klifra í framtíðinni.\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}
Kjöri Íþróttamanns Akraness lýst á ÍATV 6. janúar - Skessuhorn