
Frændurnir Tómas og Magnús að landa aflanum. Ljósm. af.
Stíft róið þegar gefur til sjós
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Smærri línubátar hafa róið stíft frá Snæfellsbæ að undanförnu þrátt fyrir rysjótta tíð. Bátar hafa sótt suður fyrir Öndverðarnes til þess að komast í skjól frá norðaustan áttinni. Kvika SH er búin að landa tvisvar á Arnarstapa og verið með í kring um átta tonn í róðri, en Indriði Kristins BA var við bjargið og sögðu skipverjar að leiðindaveður hafi verið, en þó sléttur sjór.\r\n\r\nIndriði Kristins landaði í Ólafsvík í dag 24 tonnum á rúmlega eina lögn. „Við urðum að skilja eftir næstum helming línunnar í sjó vegna þess að öll kör í bátnum voru orðin full,“ sagði Magnús skipverji á Indriða í samtali við Skessuhorn. „Við förum út aftur strax og við verðum búnir að landa en þessi afli fer í vinnslu hjá Kambi í Hafnarfirði, en við munum landa næst heima á Tálknafirði,“ sagði hinn síbrosandi Magnús að lokum.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_49906\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-49906 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/12/Stift-roid-thegar-gefur-til-sjos_2-600x366.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"366\" /> Indriði Kristins að koma til hafnar í Ólafsvík í kaldaskít fyrr í dag.[/caption]",
"innerBlocks": []
}