{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Alls greindust 836 með kórónuveiruna innanlands í gær. Aldrei áður hafa svo margir greinst með kórónuveiruna hér á landi á einum sólarhring frá upphafi faraldursins. 482 af þeim 836 sem greindust innanlands í gær voru utan sóttkvíar við greiningu eða 58 prósent. 354 voru í sóttkví eða 42 prósent.\r\n\r\nÞetta kemur fram á síðunni covid.is en nú eru 4.995 í einangrun vegna Covid 19 samanborið við 2.622 á Þorláksmessu þegar síðan var síðast uppfærð. 6.187 eru nú í sóttkví en voru 3.159 á fimmtudag og þá eru 507 nú í skimunarsóttkví.\r\n\r\n21 sjúklingur liggur nú inni á sjúkrahúsi vegna Covid 19 en voru fjórtán í gær. Á vef Landspítalans segir að meðalaldur inniliggjandi séu 63 ár. Fjórir eru á gjörgæslu og þrír þeirra eru í öndunarvél. 57 greindust á landamærunum í gær, 41 virkt smit í fyrri landamæraskimun og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í sextán tilvikum.\r\n\r\nAlls hafa 24.340 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 37 andlát verið rakin til Covid 19 hér á landi frá upphafi faraldursins.",
"innerBlocks": []
}