Fréttir

true

Flugvöllur er eins og lítið samfélag

Skagakonan Maren Lind Másdóttir er forstöðumaður mannvirkja og innviða hjá Isavia, sem annast uppbyggingu og rekstur Keflavíkurflugvallar. Sem forstöðumaður ber hún ábyrgð á rekstri og viðhaldi fasteigna, véltæknikerfa og annarra innviða en hennar teymi rekur Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Hún hefur þar af leiðandi í mörg horn að líta í fjölbreyttu og ábyrgðarmikla starfi.…Lesa meira

true

Leikskólinn í Grundarfirði lokaður út vikuna

Í gærkvöldi var staðan í kóvidbylgjunni í Grundarfirði þannig að 46 íbúar höfðu verið greindir með smit. Í færslu Bjargar Ágústsdóttur bæjarstjóra kemur fram að í gær bárust tilkynningar um níu ný smit, en af þeim höfðu átta verið í sóttkví. Í sóttkví voru í gærkvöldi 91 í Grundarfirði, en voru 175 fyrr um daginn.…Lesa meira

true

Stór hópur sem tengist Brekkubæjarskóla sendur í sóttkví

Nokkur Covid-19 smit hafa nú verið greind í Brekkubæjarskóla á Akranesi og er talsvert stór hópur nemenda, og þar af leiðandi einnig aðstandenda þeirra, kominn í sóttkví af þeim sökum. Fram kemur í tilkynningu frá skólanum, sem send var út í gærkvöldi, að einn nemandi í hverjum af bekkjunum 1. BS, 2. BS, og 10.…Lesa meira

true

Stór dagur í Stykkishólmi um helgina

Það voru sannkölluð hátíðarhöld í Stykkishólmi á laugardaginn þegar afhentur var formlega nýr og upphitaður körfuboltavöllur á lóð grunnskólans. Dagurinn hófst með leik Snæfells og KR-b í 2. deild karla þar sem Snæfell skilaði sigri í hús til að auka stemninguna, lokatölur 87:57 fyrir heimamenn. Áður en leikur Snæfells og Ármanns hófst í 1. deild…Lesa meira

true

Enn fer mikill afli um Grundarfjarðarhöfn

Nóvembermánuður hefur verið erilsamur á höfninni í Grundarfirði en fjöldinn allur af skipum hefur komið þangað til löndunar. Í október var landaður afli um 2.100 tonn og var það helmingsaukning frá árinu áður. Mánudaginn 22. nóvember var landaður afli kominn í rúmlega 2.100 tonn en til viðmiðunar var landaður afli í nóvember 2020 1.339 tonn…Lesa meira

true

Ríkisstyrkir halda áfram að örva bókaútgáfu

Útgefnum bókum heldur áfram að fjölga samkvæmt fjölda skráðra titla í Bókatíðindum ársins 2021. Á þessu ári eru samkvæmt Bókatíðindum gefnir út 14,4% fleiri titlar en á síðasta ári. Það skýrist meðal annars af aukinni útgáfu á hljóð- og rafbókum, ungmennabókum og þýddum skáldverkum og fræðibókum. Alls hefur 361 milljón króna verið greidd úr ríkissjóði…Lesa meira

true

Stórtækir skógarhöggsmenn í Dölum

Það var svolítið skrýtið í fyrstu að fara í spjall um skógræktarmál í nóvember þegar jörðin er alhvít, en fréttaritari Skessuhorns skrapp nýverið í heimsókn í Neðri Hundadal í Dölum og hitti þá Jens Líndal Sigurðsson og Guðmund Frey Geirsson að máli. Forvitnast er um hvað þeir félagar eru að bauka við sem tengist skógrækt…Lesa meira

true

Formaður yfirkjörstjórnar NV kærður til lögreglu

Jón Þór Ólafsson, fv. alþingismaður Pírata og umboðsmaður flokks síns við síðustu alþingiskosningar, hefur kært Inga Tryggvason formann yfirkjörstjórnar NV kjördæmis til lögreglu. Kæruna byggir Jón Þór á lýsingu málsatvika í greinargerð undirbúningsnefndar Alþingis fyrir rannsókn kjörbréfa og opinberum upplýsingum sem lögreglan sendi nefndinni. Jón Þór heldur því fram að formaður yfirkjörstjórnar hafi skapað sér…Lesa meira

true

Afkoma ríkissjóðs skárri en áætlað hafði verið

Uppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu níu mánuði ársins liggur fyrir. Uppgjörið í heild sinni er aðgengilegt á vef Fjársýslu ríkisins. Þar kemur fram að afkoma ríkissjóðs á fyrstu níu mánuðum ársins er neikvæð um 138 ma.kr. sem er þó 51 ma.kr. betri en áætlanir í upphafi árs gerðu ráð fyrir. Bætt afkoma skýrist af sterkari tekjuvexti…Lesa meira

true

Fjórðungur bæjarbúa í sóttkví eða einangrun

Staðan í Grundarfirði vegna Covid-19 bylgjunnar er gríðarlega viðkvæm. Rakningarteymið vinnur sitt verk og hefur gert síðustu daga. „Fólk er beðið um að sýna mikla aðgát og takmarka ferðir sínar við allra nauðsynlegustu erindi á meðan verið er að ná utan um útbreiðslu veirunnar,“ skrifar Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri í tilkynningu á vef bæjarins. Nú eru…Lesa meira