
Kæran byggir á meintum brotum formanns yfirkjörstjórnar á talningarstað á Hótel Borgarnesi. Hann er sakaður um að hafa skapað sér tækifæri til að svindla á atkvæðunum daginn eftir að atkvæði voru talin. Ljósm. mm.
Formaður yfirkjörstjórnar NV kærður til lögreglu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Jón Þór Ólafsson, fv. alþingismaður Pírata og umboðsmaður flokks síns við síðustu alþingiskosningar, hefur kært Inga Tryggvason formann yfirkjörstjórnar NV kjördæmis til lögreglu. Kæruna byggir Jón Þór á lýsingu málsatvika í greinargerð undirbúningsnefndar Alþingis fyrir rannsókn kjörbréfa og opinberum upplýsingum sem lögreglan sendi nefndinni. Jón Þór heldur því fram að formaður yfirkjörstjórnar hafi skapað sér með lögbroti tækifæri til að svindla á atkvæðunum. Hann hafi auk þess hraðað endurtalningu atkvæðanna þannig að lögbundið eftirlit var ómögulegt. Loks hafi formaður yfirkjörstjórnar farið rangt með í gerðabók, í fjölmiðlum, fyrir þingnefnd og lögreglu varðandi þau málsatvik sem benda á mögulega sekt hans.\r\n\r\nÍ kæru Jóns Þórs til lögreglu segir: „Kæran beinir því til lögreglu að rannsaka sérstaklega hvort gögn málsins sýni að nægar líkur séu á því að oddviti YNV hafi brotið 128 gr. laga um kosningar til Alþingis með því að hafa vísvitandi rangfært atkvæðagreiðslu. Séu fyrir hendi næg sönnunargögn sé rétt samkvæmt lögum að gefa út ákæru þess efnis, en slíkt brot varðar fangelsi allt að fjórum árum. Kæran beinir því jafnframt til lögreglu að rannsaka önnur möguleg lögbrot við framkvæmd kosninganna er varða sektum.” Þess er að lokum krafist í kærunni að málið verði tekið til rannsóknar lögreglu án tafar enda málið þess eðlis. „Nauðsynlegt er að lögregla framfylgi sínum skyldum að fullu eins og kveðið er á um þær í lögum um kosningar þegar þeir sem bera ábyrgð á framkvæmd kosninganna fara mögulega á svig við lögin.“",
"innerBlocks": []
}