
Löng biðröð í skimun framan við heilsugæslustöð HVE í Grundarfirði. Ljósm. tfk.
Fjórðungur bæjarbúa í sóttkví eða einangrun
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Staðan í Grundarfirði vegna Covid-19 bylgjunnar er gríðarlega viðkvæm. Rakningarteymið vinnur sitt verk og hefur gert síðustu daga. „Fólk er beðið um að sýna mikla aðgát og takmarka ferðir sínar við allra nauðsynlegustu erindi á meðan verið er að ná utan um útbreiðslu veirunnar,“ skrifar Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri í tilkynningu á vef bæjarins.\r\n\r\nNú eru 38 í einangrun í Grundarfirði, meirihlutinn eru börn 12 ára og yngri. 175 eru skráðir í sóttkví. „Þetta eru tæp 25% bæjarbúa og eru þá ótaldir foreldrar og forráðamenn sem eru heima með börnum í sóttkví,“ skrifar Björg.",
"innerBlocks": []
}