Fréttir

true

Sindri Snær genginn til liðs við Keflavík

Sindri Snær Magnússon, leikmaður ÍA, er genginn í raðir Keflavíkur og hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Sindri Snær hefur leikið með Skagamönnum síðustu þrjú tímabil, lék 38 leiki og skoraði eitt mark. Sindri Snær lék með Keflvíkingum tímabilin 2014 og 2015, eftir það gekk hann til liðs við ÍBV og spilaði með…Lesa meira

true

Enn hækkar Seðlabankinn stýrivexti

Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti í morgun ákvörðun sína um að hækka stýrivexti um 0,5 prósentustig. Þetta er í fjórða sinn í röð á skömmum tíma sem bankinn hækkar vexti. Stýrivextir voru 0,75% í maí á þessu ári en eru nú komnir upp í 2%. Fram kemur í yfirlýsingu bankans að verðbólguhorfur hafi versnað frá því í…Lesa meira

true

Hundurinn Garpur fann lifandi kind í fönn

Rjúpnaveiðimenn sem voru á veiðum í Garpsdal við Gilsfjörð í Reykhólahreppi á dögunum gengu fram á kind sem var grafin í fönn í lækjarskorningi. Ærin reyndist vera frá Gróustöðum, hafði komið fram í leitum í haust en laumast að heiman og lent í þessum ævintýrum. Þorkell Guðjónsson rjúpnaveiðimaður og félagi hans sögðu í viðtali við…Lesa meira

true

Þúsund tonn af salti

Falksea kom til Grundarfjarðar síðastliðinn miðvikudag til að skipa upp salti á vegum Saltkaups. Skipað var upp þúsund tonnum sem öll fóru í geymslu en þaðan er saltinu dreift eftir þörfum í vinnslur á Snæfellsnesi. Það voru Ragnar og Ásgeir ehf sem sáu um að skipa upp saltinu, en að því loknu hélt skipið til…Lesa meira

true

Arnaldur hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar

Arnaldur Indriðason rithöfundur hlaut í dag Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar. Verðlaunin eru veitt árlega, á degi íslenskrar tungu, þeim einstaklingi sem hefur með sérstökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti, með skáldskap, fræðistörfum eða kennslu og stuðlað að eflingu hennar, framgangi eða miðlun til nýrrar kynslóðar. Sérstaka viðurkenningu dags íslenskrar tungu hlaut að…Lesa meira

true

Eldsvoðinn reyndist bilað pústkerfi

Gullhólmi SH-201 var dreginn að landi af björgunarskipi Lífsbjargar, Björginni, snemma í morgun. Í fyrstu var talið að eldsvoði hefði orðið í vélarrúmi skipsins. Áhöfnin brást rétt við og ræsti slökkvikerfi skipsins, lokaði rýmum og kallaði eftir aðstoð. Engan sakaði um borð. Að sögn lögreglunnar á Vesturlandi hefur nú komið í ljós að ekki hafi…Lesa meira

true

Karlakaffi í Vinaminni á morgun

Karlakaffi á vegum Akraneskirkju verður haldið í annað sinn í Vinaminni á Akranesi á morgun, miðvikudag, og hefst klukkan 13.30. Karlakaffið er ætlað mönnum á aldrinum 60 ára og eldri en yngri menn eru að sjálfsögðu velkomnir ef þeir vilja slást í hópinn. Gestur í karlakaffinu á morgun verður Gísli Gíslason formaður Brims Þróunarfélags á…Lesa meira

true

Fjölgun smitaðra á landsvísu aldrei meiri

Alls voru 206 einstaklingar greindir með Covid-19 á landinu í gær. Hafa aldrei fleiri greinst með veiruna á einum degi frá upphafi faraldursins fyrir tæpum tveimur árum. Tæpur helmingur þeirra sem greindust höfðu verið í sóttkví fyrir greiningu. Hér á Vesturlandi fjölgaði um tvo í einangrun milli daga, eru nú 95 í landshlutanum og 86…Lesa meira

true

Endurnýja ræsi á Snæfellsnesi

Þessa dagana er Vegagerðin að láta lengja ræsi og bæta öryggissvæði í kringum þau. Áætlað er að lengja fjögur ræsi og lagfæra fláa á Snæfellsvegi milli Búlandshöfða og Grundarfjarðar. Vegagerðin er með umsjón og verkstjórn en sex verktakar vinna verkið. Eru ökumenn beðnir að virða þær hraðatakmarkanir sem settar eru upp á meðan á framkvæmdum…Lesa meira

true

Mannbjörg þegar eldur kom upp í Gullhólma

Eldur kom upp í Gullhólma SH snemma í morgun þar sem skipið var á Breiðafirði. Skipverjar brugðust rétt við, að sögn Svans Tómassonar slökkviliðsstjóra sem mbl.is ræddi við nú fyrir skömmu. Áhöfnin brást hárrétt við aðstæðum, ræsti slökkvikerfi skipsins, lokaði rýmum og kallaði eftir aðstoð. Engan sakaði. Nærliggjandi bátum var gert viðvart og dró Björgin,…Lesa meira