Fréttir

true

Fækkar í hópi Covid sjúklinga á Vesturlandi

Í gær voru 135 greindir með Covid-19 á landinu öllu, heldur lægri tala en alla daga vikunnar þar á undan. Samkvæmt nýrri samantekt Lögreglunnar á Vesturlandi yfir fjölda smitaðra og í sóttkví í landshlutanum, fækkar um 18 í einangrun milli daga. Nú eru þeir 156 , voru 174 í gær. Í sóttkví er 121. Á…Lesa meira

true

Skallagrímur sigraði Selfoss í hörkuleik

Skallagrímur tók á móti Selfossi í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Skallagrímur náði sínum fyrsta sigri í deildinni gegn Hrunamönnum á dögunum en tapaði síðan gegn liði Hattar frá Egilsstöðum síðasta mánudag. Selfyssingar höfðu fyrir þennan leik unnið fjóra leiki og tapað þremur í deildinni og því sigurstranglegri fyrir fram í leiknum. Skallagrímsmenn…Lesa meira

true

Dúllurnar gáfu bókasafninu heklað jólatré

Dúllurnar er hópur handverkskvenna á Akranesi sem hefur um árabil komið saman og átt dúllustundir á Bókasafni Akraness. Nýverið afhentu dúllurnar bókasafninu glæsilegt jólatré þar sem fjöldi heklaðra dúlla prýðir trégrind sem hefur form jólatrés. Tréð verður framvegis uppi á aðventunni til yndisauka fyrir gesti. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem dúllurnar láta þannig…Lesa meira

true

Varað við hvassviðri við fjöll

Vegagerðin varar við því að í dag er útlit fyrir snarpar vindhviður, 35-40 m/s á Kjalarnesi, og við Hafnarfjall frá um klukkan 12 til 17, en lægir þá heldur. Aftur er svo spáð hvassviðri snemma í nótt með sunnanátt. Þá verður víða hvasst á Snæfellsnesi og norðanlands.Lesa meira

true

Íslenskt hvalkjöt selt í kjötborði í Japan

Borgnesingurinn Jóhann Lind Ringsted býr ásamt konu sinni Ayaka og dótturinni Hönnu í hafnarborginni Sendai í norðurhluta Japan og starfar þar sem kennari. Fjölskyldan kaupir stundum í matinn á markaði sem staðsettur er við höfnina í Sendai. Hluti markaðarins er fiskmarkaður sem tengist beint við höfnina og hefur á boðstólnum nýtt sjávarfang. Verslunin er nýleg…Lesa meira

true

Ekki samstaða um hvort fiskvegur við Barnafoss þurfi að fara í umhverfismat – uppfærð frétt

Sveitarfélaginu Borgarbyggð barst fyrr á árinu ósk frá Skipulagsstofnun um umsögn vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar við fiskveg í jarðgöngum við Barnafoss í Hvítá. Umsagnaraðilar málsins eru sveitarfélagið og Umhverfisstofnun. Eins og fram kom í frétt Skessuhorns í júní síðastliðnum var samþykkt á aðalfundi Veiðifélags Hvítár og Norðlingafljóts 1. júní að félagið heimilaði fyrir sitt leyti framkvæmdir…Lesa meira

true

Bjóða út tölvuþjónustu

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum í gær að breyta skipuriti sveitarfélagsins á þann veg að framvegis muni sveitarfélagið kaupa út tölvuþjónustu í stað þess að hafa starfsmann á launum við slíka vinnu á stjórnsýslu- og þjónustusviði. Farið verður í útboð á þjónustunni. Í fundargerð sveitarstjórnar kemur fram að fráfarandi tölvuumsjónarmanni hafi verið sagt upp…Lesa meira

true

Styrktu Bjarka Fannar og fjölskyldu myndarlega

Bjarki Fannar er 14 ára drengur á Akranesi, sonur Hjalta Arnar Jónssonar og Myrru Gísladóttur. Bjarki fæddist með sjaldgæfan hjartagalla og er á leið í sína þriðju opnu hjartaaðgerð í Boston í byrjun desember. Hann er næst elstur fimm systkina og þarf Bjarki að dvelja í Boston í þrjár til fjórar vikur eftir aðgerð og…Lesa meira

true

Taka í notkun sjálfvirka meðalhraðavöktun á tveimur stöðum

Vegagerðin gangsetur í næstu viku meðalhraðaeftirlit á tveimur stöðum á landinu. Í fyrsta sinn á Íslandi verður sú aðferð notuð að reikna út meðalhraða bifreiða á milli tveggja punkta á sjálfvirkan hátt. „Rannsóknir sýna að sjálfvirkt hraðaeftirlit virkar vel til að halda niðri umferðarhraða og fækka slysum. Meðalhraðaeftirlit er þó enn áhrifaríkara en punkthraðaeftirlit. Vonast…Lesa meira

true

Samráð haft við ungmenni um Þjóðgarðinn Snæfellsjökul

Í vinnu við endurskoðun á stjórnunar- og verndaráætlun Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls er víðtækt samráð haft við hagsmunaaðila. Á vef Umhverfisstofnunar er fjallað um einn mikilvægasta hagsmunahópinn, þ.e. unga fólkið í Snæfellsbæ. „Einn hópur hagsmunaaðila er unga fólkið í Snæfellsbæ sem hafði margt fram að færa um stefnumótun og framtíðarsýn þjóðgarðsins á fundum sem Umhverfisstofnun hélt með…Lesa meira