
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að úthluta af safnliðum fjárlaga 270 milljónum króna til tækjakaupa á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni og 80 milljónum króna til tæknilausna sem nýtast í þágu aldraðra sem búa heima en bíða eftir hjúkrunarrými og þurfa á mikilli þjónustu að halda. Hæsta úthlutunin til tækjakaupa, 70 milljónir króna, rennur til Heilbrigðisstofnunar Vesturlands…Lesa meira








