Ninja Ómarsdóttir og Eiríkur Blöndal með gærur frá Brákarey í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Ljósm. arg.

Gærur úr heimabyggð til sölu í Borgarnesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Brákarey handverksframleiðsla er nýtt vörumerki í eigu Sláturhúss Vesturlands í Brákarey í Borgarnesi. Þar eru nú framleiddar gærur og aðrar afurðir sem falla til við slátrun á vestlensku sauðfé. „Tilgangurinn er að auka verðmætasköpun, nýta betur afurðina og styðja nærsamfélagið á sjálfbæran hátt. Við framleiðum gæðagærur úr heimabyggð sem nú eru komnar í sölu heima í héraði, bæði í Ljómalind og Landnámssetrinu í Borgarnesi,“ segir Eiríkur Blöndal, einn af eigendum Sláturhúss Vesturlands í samtali við Skessuhorn. Gærurnar eru sendar til Svíþjóðar í sútun hjá fyrirtækinu AB Tranås Skinnberedning, sem er stýrt af sauðfjárbændum í Tranås í Smálöndum. Að sögn Ninju Ómarsdóttur, markaðsstjóra Brákareyjar, var ákveðið að senda gærurnar til Svíþjóðar í verkun til að stuðla að eins umhverfisvænni framleiðslu og hægt er. „Langflestir senda gærur til sútunar lengra austur, til Austur Evrópu eða Asíu því það er ódýrara. En við ákváðum að senda okkar gærur til Svíþjóðar til að takmarka kolefnisspor. Við völdum líka stöndugt lítið fyrirtæki sem leggur áherslu á umhverfismál. Það er kannski dýrara, en réttara fyrir umhverfið,“ segir Ninja. „Í Svíþjóð eru strangar umhverfiskröfur og mikið eftirlit með fyrirtækjum og hjá þessu fyrirtæki er því hugsað vel um bæði umhverfið og aðbúnað starfsfólks,“ bætir Eiríkur við.\r\n\r\n<strong>Vonast til að fólk fari meira að sækja í nærsamfélagið</strong>\r\n\r\nSpurð hvort ekki sé hægt að súta gærurnar hér á landi segja þau enga slíka þjónustu vera á Íslandi, sem gæti tekið við því magni sem þau eru með. „Það var verksmiðja á Sauðárkróki sem lagði niður starfsemi einfaldlega því reksturinn stóð ekki undir sér. En það eru ótrúlega margt duglegt fólk að súta í heimahúsum, en myndi ekki ráða við það magn sem við erum með,“ svarar Eiríkur og bætir við að erfiðlega hafi gengið að halda úti svona starfsemi hér á landi vegna kostnaðar. „Þetta er einfaldlega ódýrara annars staðar í heiminum og ekki hægt að keppa við það. En sjálfbærni er framtíðin og vonandi förum við í meira mæli að sækja þjónustu í nærsamfélaginu okkar,“ segir hann. „En það er líka ástæðan fyrir því að við völdum Svíþjóð, það er nær okkur og það skiptir máli að halda í svona þjónustu eins nálægt okkur og við getum og þá verðum við að nýta hana,“ bætir Ninja við.\r\n\r\n<strong>Fengið góð viðbrögð</strong>\r\n\r\nAðspurð segja þau verkefnið fara vel af stað og að eftirspurnin sé fín. „Við höfum líka fengið mjög góð viðbrögð við gæðum vörunnar,“ segir Eiríkur og Ninja tekur undir það. Hjá Brákarey eru seldar bæði hvítar gærur og gærur í allskonar litum. „Íslensku gærurnar eru líka svo sérstakar að því leyti að þær eru töluvert léttari en flestar aðrar gærur. Þær eru líka oft fallegri því við erum ekki að glíma við skordýr sem herja á dýrin erlendis og skilja eftir sig ummerki á leðrinu,“ segir Eiríkur.\r\n\r\nHjá Brákarey er hægt að fá bæði óklipptar gærur og stuttklipptar, en stuttklipptar gærur hafa í gegnum árin gjarnan verið notaðar fyrir börn. „Það tíðkaðist hér áður fyrr að vera með gærur undir börnum í vögnunum. Ég held því miður að mín kynslóð hafi aðeins týnt þeirri kunnáttu og byrjað að nota allskonar vörur sem eru ekki úr jafn góðum efnum, til dæmis úr gerviefnum. Ullin hefur bara svo marga góða eiginleika, hún er til dæmis einstaklega góð til að halda jafnvægi á hita,“ segir Ninja og bætir við að stuttklipptu gærurnar henti líka vel undir börn þegar þau liggja á gólfinu, þar sem er oft aðeins kaldara. „Svo eru þær bara svo mjúkar og góðar að liggja á,“ segja þau að lokum.",
  "innerBlocks": []
}
Gærur úr heimabyggð til sölu í Borgarnesi - Skessuhorn