Eldur kom upp í vélarrúmi Særifs

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gærmorgun kom upp eldur í vélarrúmi Særifs SH 25 frá Rifi, þar sem það var við veiðar suðvestur af Látrabjargi. Skipverjar urðu fljótt varir við eldinn og brugðust mjög hratt og fumlaust við og náðu að slökkva eldinn. Fljótlega var Indriði Kristins BA kominn á vettvang og tók Særif í tog áleiðis til Patreksfjarðar, þar til björgunarbáturinn Vörður II kom til móts við skipin og tók Særif í tog til hafnar. Rannsóknanefnd sjóslysa og lögregla rannsaka tildrög óhappsins og skemmdir. Engum varð meint af við eldsvoðann.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_48778\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-48778 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/11/Eldur-kom-upp-i-velarrumi-Saerifs_2-600x1100.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"1100\" /> Vörður kominn til móts við skipin. Ljósm. aðsend.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
Eldur kom upp í vélarrúmi Særifs - Skessuhorn