Matarbíllinn sem verður á ferðinni um næstu helgi.

Matarmarkaður kemur heim í hérað um helgina

"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Matarhátíð sem halda átti á Hvanneyri næsta laugardag hefur verið frestað. Matarmarkaður sem átti að vera hluti af hátíðinni verður því með breyttu sniði og í stað þess að setja upp markað á Hvanneyri mun markaðurinn koma heim í hérað. Farið verður með bílalest hlaðna girnilegum vörum úr vestlenskri framleiðslu um landshlutann og stoppað á nokkrum vel völdum stöðum. Því geta íbúar á Vesturlandi enn kíkt á markað, bara heima í héraði. Þeir framleiðendur sem verða með eru: Sauðfjárbúið Ytra-Hólmi, Mýrarnaut, Háafell geitafjársetur, Matarhandverk Fram í Skorradal, Grímsstaðaket, Olivia‘s Gourmet, Jarðepla Jói, Narfasel grænmeti og Hafkaup.\r\n\r\nFyrsta stopp bílalestarinnar verður á Hellissandi kl. 10:00 á laugardaginn, þá verður markaðurinn í Ólafsvík kl. 11:00, Grundarfirði kl. 13:00, Stykkishólmi kl. 15:00 og í Breiðabliki kl. 17:00. Á sunnudeginum verður lestin í Búðardal kl. 10:00, á Hvanneyri kl. 12:30, Borgarnesi kl. 14:00, Laxárbakka kl. 15:30 og að lokum á Akranesi kl. 16:30.",
"innerBlocks": []

Matarmarkaður kemur heim í hérað um helgina - Skessuhorn