Úthluta til tækjakaupa á heilbrigðisstofnunum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að úthluta af safnliðum fjárlaga 270 milljónum króna til tækjakaupa á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni og 80 milljónum króna til tæknilausna sem nýtast í þágu aldraðra sem búa heima en bíða eftir hjúkrunarrými og þurfa á mikilli þjónustu að halda. Hæsta úthlutunin til tækjakaupa, 70 milljónir króna, rennur til Heilbrigðisstofnunar Vesturlands vegna tækjabúnaðar fyrir nýtt liðskiptasetur sem þar er í uppbyggingu. Heilbrigðisstofnanir Norðurlands og Austurlands fá 50 milljónir króna hvor vegna kaupa á stórum tækjum í samræmi við áætlanir og brýna þörf. Hinar stofnanirnar þrjár fá samtals 100 milljónir króna sem skiptast hlutfallslega í samræmi við fjárveitinga til sjúkrasviða þeirra.\r\n\r\n<strong>Styðja við skjáheimsóknir hjúkrunarfólks</strong>\r\n\r\nFjöldi aldraðra sem fengið hefur færni- og heilsumat og bíður þess að komast á hjúkrunarheimili dvelur á eigin heimili og þarf á mikilli þjónustu að halda. „Til að auka þjónustu við þennan hóp og tryggja betur öryggi einstaklinganna geta skjáheimsóknir verið mikilvæg viðbót og auk annarra tæknilausna sem þjóna sama tilgangi og stuðla einnig að betri nýtingu starfsfólks sem sinnir hjúkrun og umönnun fólks í heimahúsum. Til að ýta undir þróun og notkun lausna sem þessara hefur ráðherra ákveðið að úthluta samtals 80 milljónum króna til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Heilbrigðisstofnun Vesturlands fær níu milljónir til þessara tækjakaupa.",
  "innerBlocks": []
}
Úthluta til tækjakaupa á heilbrigðisstofnunum - Skessuhorn