Patrekur aðstoðar gæludýraeigendur í Dýrabæ. Ljósm. vaks

Dottið inn í Dýrabæ á Akranesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Gæludýraverslunin Dýrabær var opnuð á Akranesi 1. júní árið 2018 og hefur því verið starfrækt í meira en þrjú og hálft ár. Skagamaðurinn Patrekur Sveinn Þorkelsson hefur starfað í versluninni frá upphafi. Blaðamaður rak inn nefið í versluninni í síðustu viku og tók hann í smá spjall. Patrekur segir að í versluninni sé allt til alls fyrir öll gæludýr og úrvalið mjög fjölbreytt. Helstu merkin í hundafóðrinu eru Barking Heads, Dr. Clauder og Aatu. Kettirnir geta gætt sér á Meowing Heads og Dr. Clauder og sameiginlega á fóðrinu Canagan. Þá er til fóður fyrir hesta, naggrísi, páfagauka, fiska og fleiri dýr en Dýrabær selur einungis vörur sem eru unnar úr náttúrulegum hráefnum án aukaefna, svo sem rotvarnar- og litarefna. Þá er lögð áhersla á að að selja vörur sem viðhalda heilbrigði og vellíðan dýranna og þær verið valdar af mikilli kostgæfni.\r\n\r\nPatrekur segir að þau hafi fundið fyrir því á þessum árum að dýraeign hefur aukist og sérstaklega í kórónuveirufaraldrinum. Þá segir hann að Skagamenn og nærsveitungar hafi tekið vel á móti versluninni frá byrjun og er hann afar þakklátur fyrir það. Verslunin er einnig með allskonar fylgihluti fyrir dýrin eins og búr, bæli, klórur, leikföng, matarskálar, heilsuvörur, bursta, föt, tauma, klippur, sápur og þess háttar. Þá segir Patrekur brosandi frá því að í næstu viku séu væntanlegar jólavörurnar eins og til dæmis nammi, bein og jólahúfur. Aðspurður hvort hann hafi lent í einhverjum skemmtilegum uppákomum í vinnunni segir hann að eitt sinn hafi hann verið spurður um apamat, en taldi að líklegast væri verið að gera grín. Skjaldbökufóður hefði einnig verið spurt um en það er ekki til sölu í verslunni enda sú dýrategund bönnuð hér á landi. Patrekur segir að honum líki vel að vinna í Dýrabæ, hann hitti fullt af skemmtilegu fólki og það sé gott rennirí í versluninni heilt yfir alla daga.\r\n\r\nAlls eru fimm verslanir á vegum Dýrabæjar á landinu en þær eru staðsettar í Kringlunni, Smáralind, Spönginni, Reykjanesbæ auk Akraness. Verslunin á Akranesi er opin virka daga á milli 11 til 18 og á laugardögum frá klukkan 12-16.",
  "innerBlocks": []
}
Dottið inn í Dýrabæ á Akranesi - Skessuhorn