Fréttir

true

Dottið inn í Dýrabæ á Akranesi

Gæludýraverslunin Dýrabær var opnuð á Akranesi 1. júní árið 2018 og hefur því verið starfrækt í meira en þrjú og hálft ár. Skagamaðurinn Patrekur Sveinn Þorkelsson hefur starfað í versluninni frá upphafi. Blaðamaður rak inn nefið í versluninni í síðustu viku og tók hann í smá spjall. Patrekur segir að í versluninni sé allt til…Lesa meira

true

Gærur úr heimabyggð til sölu í Borgarnesi

Brákarey handverksframleiðsla er nýtt vörumerki í eigu Sláturhúss Vesturlands í Brákarey í Borgarnesi. Þar eru nú framleiddar gærur og aðrar afurðir sem falla til við slátrun á vestlensku sauðfé. „Tilgangurinn er að auka verðmætasköpun, nýta betur afurðina og styðja nærsamfélagið á sjálfbæran hátt. Við framleiðum gæðagærur úr heimabyggð sem nú eru komnar í sölu heima…Lesa meira

true

BM Vallá byggir nýtt stálgrindarhús

Vegfarendur sem aka Akrafjallsveg, framhjá iðnaðarhverfinu að Höfðaseli á Akranesi hafa sjálfsagt einhverjir velt fyrir sér stóru hvítu stálgrindarhúsi sem rís nú á lóð BM Vallár. Þar er um að ræða nýtt hús sem hýsa mun veggjasal, þar sem Smellinn veggjaeiningar verða framleiddar. Að sögn Steingríms Más Jónssonar, framleiðslustjóra BM Vallár á Akranesi, ganga framkvæmdir…Lesa meira

true

Matarmarkaður kemur heim í hérað um helgina

Matarhátíð sem halda átti á Hvanneyri næsta laugardag hefur verið frestað. Matarmarkaður sem átti að vera hluti af hátíðinni verður því með breyttu sniði og í stað þess að setja upp markað á Hvanneyri mun markaðurinn koma heim í hérað. Farið verður með bílalest hlaðna girnilegum vörum úr vestlenskri framleiðslu um landshlutann og stoppað á…Lesa meira

true

Hafa bætt framsetningu reglugerða á netinu

Framsetning á reglugerðum hefur tekið stórstígum framförum með nýjum vef reglugerðasafnsins á island.is/reglugerdir. Reglugerðir hafa verið aðgengilegar á rafrænu formi um nokkurt skeið en nú hefur verið stigið stærra og veigameira skref sem bætir allt aðgengi að reglugerðum til mikilla muna. Á vef reglugerðasafnsins er nú ekki aðeins hægt að sjá nýjustu, gildandi útgáfu reglugerðar,…Lesa meira

true

Bílvelta á Snæfellsnesi

Bílvelta varð á Snæfellsnesvegi, gegnt Rauðkollsstöðum, aðfararnótt mánudags. Þar fór flutningabifreið út af veginum og hafnaði á hliðinni. Loka þurfti veginum á meðan farmur var fjarlægður og bifreiðinni komið upp á veg. Aðstoðaði lögregla og björgunarsveitin Klakkur við umferðarstjórn á meðan á aðgerðum stóð.Lesa meira

true

Jörð skalf á sunnanverðu landinu

Snarpur jarðskjálfti varð nú í dag klukkan 13:23. Samkvæmt skjálftamæli Veðurstofunnar var hann að stærðinni 5,2 stig samkvæmt yfirförnum upplýsingum. Samkvæmt fyrstu upplýsingum fannst skjálftinn vel á höfuðborgarsvæðinu og sannarlega fannst hann á ritstjórn Skessuhorns á Akranesi. Upptök skjálftans eru á Suðurlandsbrotabeltinu, ekki langt frá Heklu.Lesa meira

true

Tímabundin þrenging við Suðurgötu á Akranesi

Mánudaginn 15. nóvember og þriðjudaginn 16. nóvember næstkomandi er fyrirhuguð þrenging við Suðurgötu 98 á Akranesi þegar reistar verða veggeiningar nýs húss við götuna. Til stendur að staðsetja krana á götunni til að hífa einingarnar og gera má ráð fyrir umferðartöfum í götunni vegna þessa.Lesa meira

true

Enn fjölgar í einangrun og hertar aðgerðir væntanlegar

Samkvæmt nýjum tölum Lögreglunnar á Vesturlandi fjölgar um sjö í einangrun með Covid-19 í landshlutanum frá því í gær. Eru nú 176 en að auki eru 158 í sóttkví. Á Akranesi er fjöldi smitaðra kominn í 140 og eru 114 í sóttkví. Í Borgarnesi fækkar um einn frá í gær; eru nú 24 í einangrun…Lesa meira

true

Ók bremsulaus á bílskúrshurð

Skömmu eftir miðnætti á föstudagskvöld í liðinni viku barst lögreglu tilkynning um að bíll hefði skyndilega orðið bremsulaus þegar ekið var niður vegarspotta í Borgarnesi með þeim afleiðingum að hann lenti á bílskúrshurð. Hurðin brotnaði en bíllinn fór þó ekki í gegnum hana. Ökumaður var ómeiddur en bíllinn var nokkuð skemmdur. Þykir mildi að ekki…Lesa meira