Ók bremsulaus á bílskúrshurð

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skömmu eftir miðnætti á föstudagskvöld í liðinni viku barst lögreglu tilkynning um að bíll hefði skyndilega orðið bremsulaus þegar ekið var niður vegarspotta í Borgarnesi með þeim afleiðingum að hann lenti á bílskúrshurð. Hurðin brotnaði en bíllinn fór þó ekki í gegnum hana. Ökumaður var ómeiddur en bíllinn var nokkuð skemmdur. Þykir mildi að ekki hafi farið verr.",
  "innerBlocks": []
}
Ók bremsulaus á bílskúrshurð - Skessuhorn