Fréttir

true

Margföld eftirspurn eftir greiðslumarki í mjólk

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu bárust fyrir daginn í dag 187 gild tilboð um kaup og sölu á síðasta tilboðsmarkaði ársins fyrir greiðslumark mjólkur. Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 305 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverð sem er jafnt hámarksverði. Skemmst…Lesa meira

true

Andlát – Bjarni Guðráðsson í Nesi

Bjarni Guðráðsson bóndi í Nesi í Reykholtsdal er látinn 86 ára að aldri eftir stutt veikindi. Bjarni fæddist á Skáney 13. janúar 1935. Foreldrar hans voru Guðráður Davíðsson og Vigdís Bjarnadóttir. Þau byggðu nýbýlið Nes úr Skáneyjarjörðinni og fluttu þangað með tvö barna sinna 1937. Bjarni varð eftir í fóstri hjá ömmu sinni og afa;…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu stórt gegn Hetti

Skagamenn gerðu sér langa ferð til Egilsstaða á föstudagskvöldið og léku gegn liði Hattar í 1. deild karla í körfuknattleik. Fyrir leikinn var Höttur eina liðið í deildinni sem var taplaust en Skagamenn tapað öllum fimm leikjum sínum. Heimamenn tóku fljótt forystuna í leiknum og staðan eftir fyrsta leikhluta 29:13 Hetti í vil. Skagamenn komu…Lesa meira

true

Samtök leigjenda hafa verið endurreist

Aðalfundur samtaka leigjenda, sem haldinn var 30. október síðastliðinn, skorar á alla leigjendur að ganga til liðs við samtökin og taka þátt í löngu tímabærri hagsmunabaráttu leigjenda og þeirra sem ekki komast inn á íbúðamarkaðinn. „Staða leigjenda er of veik, réttindi þeirra lítil og húsnæðiskostnaður of hár. Stjórnvöld uppfylla ekki lagaskyldu sína gagnvart leigjendum og…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði stórt gegn Njarðvík í VÍS bikarnum

Skallagrímkonur sóttu ekki gull í greipar Njarðvíkur í VÍS bikar kvenna í körfuknattleik í Fjósinu í Borgarnesi á laugardaginn. Gestirnir höfðu mikla yfirburði í leiknum, staðan eftir fyrsta leikhluta var 11:24 og í hálfleik var munurinn orðinn 20 stig, 22:42. Í þriðja leikhluta skoruðu Skallagrímskonur aðeins fjögur stig gegn 25 stigum gestanna og staðan orðin…Lesa meira

true

Landsátak í sundi hófst í dag

Landsátakið Syndum hófst í dag en átakið er á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Sundsambands Íslands og stendur til 28. nóvember. Syndum er hvatningarátak þar sem landsmenn allir eru hvattir til að synda, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. „Sund er tilvalin þjálfunaraðferð þar sem sund styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans.…Lesa meira

true

Snæfell vann KR í VÍS bikar kvenna

Snæfell lék gegn liði KR í 16-liða úrslitum VÍS bikars kvenna í körfuknattleik í Stykkishólmi í gærkvöldi og náði sigri í hörkuleik, 79-73. Snæfell náði góðum kafla um rúman miðjan fyrsta leikhluta, komst í 20:9 en KR náði aðeins að minnka muninn og staðan 24:16 við flautið. Snæfell náði að halda þessu forskoti allan annan…Lesa meira

true

Krónan veitti tveimur verkefnum á Akranesi styrk

Krónan hefur úthlutað 25 verkefnum og aðilum um sjö milljónir króna í formi samfélagsstyrkja fyrir verkefni sem hvetja til hollustu og hreyfingar barna eða verkefna sem hafa jákvæð áhrif á uppbyggingu í nærsamfélagi Krónunnar. Af þeim 25 verkefnum sem fengu styrk eru 17 á landsbyggðinni, þar af tvö á Akranesi. Muninn kvikmyndagerð hlaut styrk fyrir…Lesa meira

true

Alexandrea kom heim með silfur

Borgnesingurinn Alexandrea Rán Guðnýjardóttir keppti á föstudaginn á Heimsmeistaramóti unglinga í klassískri bekkpressu í Vilníus í Litháen. Þar nældi hún í silfrið í -63 kg flokki þegar hún lyfti 97,5 kg og bætti þar með sinn persónulega árangur um fimm kíló. Hún reyndi við nýtt Íslandsmet í þriðju lyftu þegar hún var með 102,5 kg…Lesa meira

true

Níutíu prósent þorsks eru nýtt hér á landi

Nýting á þorski hér á landi er á heimsmælikvarða en þó má gera betur, að mati Íslenska sjávarklasans. Íslenskur sjávarútvegur hefur um árabil verið í forystu í nýtingu hliðarafurða á hvítfiski í heiminum. Verulega hallar á þau lönd sem við berum okkur saman við þegar kemur að nýtingu hliðarafurða. Þó má merkja vaxandi áhuga margra…Lesa meira