Fréttir

true

Útboð á byggingarrétti á Sementsreit

Akraneskaupstaður auglýsir í dag útboð á byggingarrétti á sex lóðum á Sementsreit á Akranesi. Um er að ræða byggingarétt á fjöleignarhúsum á þremur hæðum auk bílakjallara, á fjórum lóðum á uppbyggingarreit D og á tveimur lóðum á uppbyggingarreit C. Verður öllum lóðum úthlutað til sama aðila. Það er nú komið að því að hefja uppbyggingu…Lesa meira

true

Snæfell tapaði fyrir norðan

Snæfellstúlkur sóttu lið Þórs frá Akureyri heim í gærkvöldi í 1. deild kvenna í körfuknattleik. Snæfell náði naumum sigri í fyrsta leik á útivelli gegn KR en átti við ofurefli að etja í leiknum í gær og lokatölur leiksins 79-67 Þór í vil. Snæfellsstúlkur byrjuðu þó leikinn betur og voru komnar í 1-9 eftir rúmlega…Lesa meira

true

María Kristín ráðin verkefnastjóri vegna rannsóknaseturs skapandi greina

María Kristín Gylfadóttir hefur verið ráðin í nýtt starf verkefnastjóra vegna rannsóknaseturs skapandi greina við Háskólann á Bifröst. En rannsóknasetrið var sett á fót í ágúst síðastliðnum. Í frétt á heimasíðu Háskólans á Bifröst er starfsferill Maríu rakinn. Þar segir að María hafi starfað í meira en tvo áratugi við menntun, menningu, nýsköpun og rannsóknartengd…Lesa meira

true

Matreiðslumenn í múrvinnu

Það var mikill hamagangur í öskjunni á Grundargötu í Grundarfirði þegar ljósmyndara Skessuhorns bar að garði. Þar mátti sjá matreiðslumenn og þjóna af veitingastaðnum Bjargarsteini vera að steypa gangstéttar við Grundargötuna. Það þarf nú svo sem ekki að leita langt til að fá eðlilegar skýringar á þessu, en Guðbrandur Gunnar Garðarsson, matreiðslumaður og einn af…Lesa meira

true

Óvæntur glaðningur með fé af fjalli

Litlu mátti muna í síðustu viku, þegar Jónas bóndi á Hömrum í Haukadal renndi í hlað heima hjá sér, en tveir hrafnar vomuðu yfir fénu á heimatúninu. Kom í ljós að ær ein á bænum var að bera, en það er nú ekki algengt í byrjun október. Krummarnir, sem greinilega höfðu hugsað sér gott til…Lesa meira

true

Tafir í göngunum næstu nótt

Tafir gætu orðið á umferð um Hvalfjarðargöng næstu nótt, aðfaranótt 8. október, vegna vinnu í göngunum. Á vef Vegagerðarinnar eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát á leið sinni um göngin á þessum tíma.Lesa meira

true

Jarðskjálfti á Vesturlandi í morgun

Jarðskjálfti mældist á Vesturlandi klukkan korter fyrir tíu í morgun. Í færslu sem Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands birti á Facebook fyrr í dag segir að skjálftinn hafi verið í eldstöðvakerfi Ljósufjalla og átt upptök sín 5 km austur af Langavatni á Mýrum. Er þetta sagt vera til marks um aukna jarðskjálftavirkni á svæðinu á þessu…Lesa meira

true

Búkalú á morgun

Annað kvöld verður Búkalú sýning á Söguloftinu í Borgarnesi. Um er að ræða glæsisýningu Margrétar Maack og er þetta í annað sinn sem hún kemur með sýningu á Söguloftið. Þessi sýning er þó alveg ný, með nýju fólki og nýjum atriðum. „Þetta er ástríðuverkefni hjá mér en ég hef verið að skemmta í kabarett víðs…Lesa meira

true

Býr til skart og lítil málverk

Laugardaginn 2. október síðastliðinn hélt listakonan Michelle Bird sína mánaðarlegu sýningarröð á heimili sínu í Borgarnesi sem hún umturnar í listagallerí. Sýningarnar eru einungis einn dag hverju sinni og koma allskonar listamenn úr öllum áttum á heimili Michelle til að sýna list sína í hinum ýmsu formum. Þennan laugardag var Lara Becker að sýna verkin…Lesa meira

true

Heildarframlög jöfnunarsjóðs

Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga var haldinn síðastliðinn þriðjudag. Þar kom fram að heildarframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hafi verið um 53,4 milljarðar króna á síðasta ári. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sagði í ávarpi sínu á fundinum að sveitarfélögin séu nú að njóta umfangsmikilla aðgerða ríkisins vegna heimsfaraldursins og að þær hafi með beinum eða óbeinum hætti…Lesa meira