Fréttir

true

Ungir bændur boða frambjóðendur til fundar á Hvanneyri

Samtök ungra bænda, Landbúnaðarháskóli Íslands og Matís, bjóða til opins fundar um landbúnaðarmál í Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri, þriðjudaginn 21. september 2021 kl. 19:30. Þangað er fulltrúum allra framboða til alþingis boðið að kynna framtíðarsýn flokkanna í landbúnaðarmálum. „Allir sem hafa áhuga á framgangi landbúnaðar eru hvattir til að koma, ræða við frambjóðendur og koma…Lesa meira

true

Atkvæði verða talin á Hótel Borgarnesi

Yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis mun á kjördag næstkomandi laugardag hafa aðsetur á Hótel Borgarnesi. Þar mun jafnframt fara fram talning atkvæða úr kjördæminu. Formaður yfirkjörstjórnar er Ingi Tryggvason lögfræðingur. Ingi segir í samtali við Skessuhorn búast við að fyrstu tölur úr NV kjördæmi gætu verið birtar um ellefuleytið um kvöldið. Aka þarf með atkvæði um langan veg,…Lesa meira

true

Víkingur kvaddi Lengjudeildina með sigri

Eftir að hafa tapað fimm leikjum í röð í Lengjudeildinni náði Víkingur Ólafsvík loks sigri gegn Grindavík á laugardaginn. Aðstæður voru ekki upp á það besta í Grindavík, grenjandi rigning, mikill vindur og völlurinn nánast á floti. Leikurinn byrjaði fjörlega því á fimmtu mínútu skoraði Harley Bryn Willard fyrir Víking en aðeins mínútu síðar jafnaði…Lesa meira

true

Kári tapaði sjötta leiknum í röð

Kári endaði ekki á góðu nótunum í síðasta leik liðsins í 2. deild í bili að minnsta kosti. Kári lék gegn liði Magna á Grenivíkurvelli á laugardaginn og varð að sætta sig við enn eitt tapið. Káramenn komust þó yfir í leiknum á 19. mínútu með marki Ármanns Inga Finnbogasonar en Guðni Svavarsson jafnaði fyrir…Lesa meira

true

Hraðhleðslustöð Samkaupa fær góðar undirtektir

Samkaup opnaði fyrstu rafhleðslustöðina við verslun Nettó í Borgarnesi í byrjun ágúst og hefur framtakið hlotið frábærar undirtektir, að sögn forsvarsmanna fyrirtækisins. „Fleiri hundruð rafbílaeigendur nýttu hraðhleðslustöðina til að hlaða bílana sína fyrsta mánuðinn og flestir til að fullhlaða þá, þar sem þeir voru í sambandi í nærri 30 mínútur,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri…Lesa meira

true

Ævintýraganga í Einkunnum

Rauðhetta, úlfurinn, amma, veiðimaðurinn, álfadís, svartálfur og pandabjörn voru öll saman komin í skóginum í Einkunnum síðastliðinn laugardag. Þar var líka talsvert á annað hundrað manns, börn á öllum aldri, sem tóku þá þátt í Ævintýragöngu í skóginum sem Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs stóð fyrir. Á síðu Ferðafélagsins kemur fram að gangan hafi byrjað og endað í…Lesa meira

true

Malbikað í Búðardal

Það er ekki malbikað í Búðardal á hverjum degi, en mánudaginn 13. september stóðu yfir framkvæmdir við höfnina í Búðardal, í slagveðursrigningu. Verið var að ganga frá slitlagi við höfnina, eftir veituframkvæmdir, að sögn Kristjáns Inga Arnarssonar starfsmanns Dalabyggðar. Er svæðið þar með allt orðið lagt slitlagi og eykur það bæði öryggi gangandi vegfarenda og…Lesa meira

true

Atkvæðagreiðsla fyrir þá sem verða í sóttkví eða einangrun á kjördag

Kjósanda sem verður í sóttkví eða einangrun á kjördag, og getur því ekki greitt atkvæði á almennum kjörstað eða almennum utankjörfundarstað, er heimilt að greiða atkvæði á sérstökum utankjörfundarstöðum. Í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu segir að kosning á sérstökum utankjörfundarstað megi hefjast mánudaginn 20. september. Sýslumenn, hver í sínu umdæmi, auglýsa á vefsíðunni syslumenn.is hvar og…Lesa meira

true

Skagamenn með stórsigur í botnbaráttuleik

Skagamenn voru rétt í þessu að landa stórsigri, 5-0, gegn Fylki í sannkölluðum fallbaráttuslag í næstsíðustu umferð Pepsi Max deildar karla í fótbolta. Spilað var á Akranesvelli við fínar aðstæður. Fyrir leikinn voru Skagamenn á botninum en Fylkir í sætinu fyrir ofan með stigi meira. Hvorugu liði nægði jafntefli til að forðast falldrauginn og því…Lesa meira

true

Myndasyrpa – Réttað í Svarthamarsrétt

Víða er réttað um þessa helgi. Í morgun var m.a. réttað í Svarthamarsrétt á Hvalfjarðarströnd í ágætu veðri. Kolbrún Ingvarsdóttir ljósmyndari tók meðfylgjandi myndir og leyfum við lesendum að njóta þeirra hér.Lesa meira