Fé rekið til Svarthamarsréttar. Ljósm. ki.

Ungir bændur boða frambjóðendur til fundar á Hvanneyri

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Samtök ungra bænda, Landbúnaðarháskóli Íslands og Matís, bjóða til opins fundar um landbúnaðarmál í Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri, <strong>þriðjudaginn 21. september 2021 kl. 19:30</strong>. Þangað er fulltrúum allra framboða til alþingis boðið að kynna framtíðarsýn flokkanna í landbúnaðarmálum. „Allir sem hafa áhuga á framgangi landbúnaðar eru hvattir til að koma, ræða við frambjóðendur og koma sínum sjónarmiðum á framfæri,“ segir í tilkynningu. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti og gestir jafnframt hvattir til að huga vel að sóttvörnum; „ein kind er hæfileg á milli manna.“\r\n\r\nFundinum verður streymt á síðu Félags ungra bænda.",
  "innerBlocks": []
}
Ungir bændur boða frambjóðendur til fundar á Hvanneyri - Skessuhorn