Við hraðhleðslustöð Nettó í Borgarnesi. Ljósm. aðsend.

Hraðhleðslustöð Samkaupa fær góðar undirtektir

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Samkaup opnaði fyrstu rafhleðslustöðina við verslun Nettó í Borgarnesi í byrjun ágúst og hefur framtakið hlotið frábærar undirtektir, að sögn forsvarsmanna fyrirtækisins. „Fleiri hundruð rafbílaeigendur nýttu hraðhleðslustöðina til að hlaða bílana sína fyrsta mánuðinn og flestir til að fullhlaða þá, þar sem þeir voru í sambandi í nærri 30 mínútur,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa. „Miðað við okkar spá um meðalnotkun, þá náðum við 95% af því marki fyrsta mánuðinn.“\r\n\r\nFyrr á árinu gerðu Samkaup samning við Ísorku um að setja upp á rafhleðslustöðvar við verslanir um land allt. Áætlað er að aðrar verslanir Samkaupa muni bjóða upp á hleðslustöðvar á komandi misserum og styttist í uppsetningu næstu fimm stöðva. Gunnar Egill segist bíða framhaldsins með eftirvæntingu. „Þróunin á þessum markaði er gríðarlega spennandi, en í upphafi þessa árs voru seldir fleiri nýir bílar sem knúnir eru rafmagni en bensíni eða dísilolíu. Við búumst við að þessari þjónustu verði vel tekið af viðskiptavinum okkar um allt land, sem og ferðamönnum, erlendum og innlendum.“\r\n\r\nRafhleðslustöðvar Samkaupa eru 150KW og eru eingöngu hannaðar fyrir rafbíla sem geta hraðhlaðið. Þær verða settar upp við að minnsta kosti helming verslana félagsins en Samkaup rekur rúmlega 60 verslanir víðsvegar um landið undir vörumerkjunum Nettó, Krambúðin, Kjörbúðin og Iceland.",
  "innerBlocks": []
}
Hraðhleðslustöð Samkaupa fær góðar undirtektir - Skessuhorn