Íþróttir

Skagamenn með stórsigur í botnbaráttuleik

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skagamenn voru rétt í þessu að landa stórsigri, 5-0, gegn Fylki í sannkölluðum fallbaráttuslag í næstsíðustu umferð Pepsi Max deildar karla í fótbolta. Spilað var á Akranesvelli við fínar aðstæður. Fyrir leikinn voru Skagamenn á botninum en Fylkir í sætinu fyrir ofan með stigi meira. Hvorugu liði nægði jafntefli til að forðast falldrauginn og því var allt lagt í sölurnar. Úrslitin þýða að enn er von hjá Skagamönnum að halda sér uppi í deild þeirra bestu. Eftir að Fylkir missti mann út af á 12. mínútu dvínaði von gestanna og nýttu heimamenn liðsmuninn strax á 13. mínútu þegar fyrsta markið leit dagsins ljós úr vítaspyrnu. Mörk Skagamanna í leiknum gerðu þeir Steinar Þorsteinsson, Hákon Ingi Jónsson, Jón Gísli Eyland, Ingi Þór Sigurðsson og Eyþór Aron Wöhler.\r\n\r\n<a href=\"https://www.mbl.is/sport/enski/2021/09/19/rautt_og_fimm_mork_thegar_skagamenn_stukku_ur_falls/\"><em>Sjá nánar fína leiklýsingu Stefáns Stefánssonar á mbl.is</em></a>",
  "innerBlocks": []
}
Skagamenn með stórsigur í botnbaráttuleik - Skessuhorn